Mulningur #4

   Saga af sjónum.

  USS_Reeves_(CG-24)Sjóliði á USS Reeves á siglingu frá Bandaríkjunum til Japan var sekur fundinn um minni háttar yfirsjón, lækkaður um eitt þrep í tign, dæmdur í sekt og til að ganga aukavaktir í þrjár vikur.

  Inn í þetta tímabil kom afmælið hans, 2. júlí, sem hann hlakkaði mikið til. Þess vegna stappaði hann í sig stálinu með því að þrástaglast á hverri aukavakt á því sama: „Þeir geta dæmt mig, þeir geta sektað mig, en þeir geta aldrei tekið af mér afmælisdaginn minn.“ 

  Spennan magnaðist eftir því sem nær dró afmælisdeginum.  Þegar pilturinn skreið í koju að kvöldi 1. júlí fór hann með þuluna sína venju samkvæmt:  „Þeir geta dæmt mig, þeir geta sektað mig, en þeir geta aldrei tekið af mér afmælisdaginn minn.“

  En næsta morgun komst hann að því að um nóttina hafði skipið farið vestur yfir daglínuna – svo nú var allt í einu kominn 3. Júlí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Þetta þarf ég að gera á næsta ári.

Hvar er þessi tímalína?

Sveinn Elías Hansson, 27.2.2010 kl. 02:53

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hún hlykkjast um Kyrrahafið pólana á milli. Takk fyrir þegar ég las athugasemd þína áttaði ég mig á því að þetta heitir daglína ekki tímalína, laga það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.2.2010 kl. 02:57

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sem næst 180°

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.2.2010 kl. 03:00

4 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Er mögulegt að maður geti sleppt úr degi með því að flytja sig yfir daglínuna?

Sveinn Elías Hansson, 27.2.2010 kl. 11:42

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já þegar farið er yfir línuna í vestur tapast dagur en öfugt þegar farið er í austur. Ef skipið hefði verið á austur leið þá hefði gæinn sofnað 1. júlí og vaknað daginn eftir sem líka hefði verið 1. júlí. Ef þú stendur klofvega (fræðilega séð) á daglínunni stendur annar fóturinn í "dag" en hinn í "gær".

Klikkaðu á undirstrikaða linkinn í neðstu málsgreininni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.2.2010 kl. 12:22

6 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Hvaða link??

Sveinn Elías Hansson, 27.2.2010 kl. 12:46

7 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Ok sé það núna.

Sveinn Elías Hansson, 27.2.2010 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband