Mér er létt!

beer-on-bellyStór og þanin bjórvömb er afskaplega hvimleitt fyrirbrigði og berandanum lítt til fegurðarauka.

Hér er talað af reynslu, þótt „bjórvömbin“ mín hafi orðið til vegna ofneyslu  á mat frekar en bjór.

Þessi frétt er yndisleg, hún færir mér sanninn um að bjórvömbinfat_beer-250x400 er ekki mín sök heldur konunnar.  

Ég veit núna að ég ber enga ábyrgð á aukakílóunum, þau get ég alfarið skrifað á reikning konunnar og formæðra hennar,  þótt flest hafi kílóin komið eftir að við hjónin skildum.

Þetta vissi ég alltaf, svona ómeðvitað, en hér er það svart á hvítu.

Mér er létt, stórlega. Skál fyrir því.

.


mbl.is Karlmenn eiga konum bjórinn að þakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Vá, þetta er nokkið vel í látið og hann er stoltur sýnist mér. Þyngdin er svona 35 kíló minnst

Finnur Bárðarson, 31.3.2010 kl. 15:28

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er annaðhvort að gera þetta með stæl eða .....

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.3.2010 kl. 15:33

3 Smámynd: Hamarinn

Konur hafa ýmislegt á samviskunni. Og ætli það komi ekki fram í skírslu rannsóknarnefndar alþingis, að hrunið sé konunum að kenna eftir allt saman, karlagreyin hafa verið hafðir fyrir rangri sök.

Hamarinn, 31.3.2010 kl. 16:15

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ekki kæmi það mér á óvart, bölv.... tæfurnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.3.2010 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.