Heggur sá er vægja skyldi.

BM Vallá hf.  er fallið í valin og eru örlög fyrirtækisins vissulega sorgleg.

En frekar lágkúrulegt þykir mér að stjórn fyrirtækisins skuli kenna núverandi stjórnvöldum um, hvernig fór.

Ekki voru það  núverandi stjórnvöld sem skuldsettu fyrirtækið upp í rjáfur í rúllettuleik græðginnar í miðju góðærinu.

Allir töldu að fyrirtækið væri stöndugt og vel rekið af hæfum mönnum, en svo bregðast víst krosstré sem önnur.

 
mbl.is BM Vallá óskar eftir gjaldþrotaskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað varð um niðurfellingarnar... eru þær bara fyrir útvalda :)

Dengsi (IP-tala skráð) 17.5.2010 kl. 14:57

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Góð spurning, því miður get ég ekki svarað henni, það verða bankarnir að gera.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.5.2010 kl. 15:00

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Lamandi hönd hreinnar vinstri stjórnar hefur kannski eitthvað að segja?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.5.2010 kl. 15:26

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Öllum væri óhægt um vik með vöggugjöf og arf íhaldsins á bakinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.5.2010 kl. 15:44

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sókn er besta vörnin, Axel!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.5.2010 kl. 15:55

6 identicon

Það hlýtur alltaf að teljast meira en lítið bogið við það þegar að fyrirtæki neitar að skila ársreikningum, BM Vallá er með vanskil á ársreikningum til Ársreikningaskrár síðan 1995 (Heimild: Ársreikningaskrá.is). Ekki nóg að bera við samkeppnissjónarmiðum.

Sigurjón Þ (IP-tala skráð) 17.5.2010 kl. 18:17

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég mundi þegar þú nefndir það Sigurjón, að hafa heyrt af þessu ársreikningamáli og fyrirtækjaskrá staðfestir að BM Vallá hafi ekki skilað ársreikningum síðan 1995.

Ég hélt að þetta væri ekki hægt, allavega líðst litla Nonna þetta ekki.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.5.2010 kl. 18:54

8 identicon

Er ekki LUNDI búinn að maka krókinn , árum saman ?

Og svo komu tár krókodíls .

Kristín (IP-tala skráð) 17.5.2010 kl. 19:25

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta var átakanleg stund Kristín.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.5.2010 kl. 20:14

10 identicon

Sammála þér. Maður á ekki að kenna öðrum um ef maður rak fyrirtæki í 50 ár og allan tímann á einhverjum rosalegum lánum. Það er ekki að reka fyrirtæki.

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 17.5.2010 kl. 20:28

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það lætur nærri Bragi

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.5.2010 kl. 22:12

12 identicon

Lundi hefur aldrei kunnað að reka fyrirtæki amk ekki öðru vísi en hafa rangt við.  Get ekki sagt að ég sjái eftir þessu fyrirtæki ég vona hinsvegar að strákarinir á gólfinu fái fljótlega eitthvað að gera því ég veit að margt gott fólk hefur unnið hjá fyrirtækinu í gegnum tíðina.

Haraldur (IP-tala skráð) 17.5.2010 kl. 22:27

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Fasteignir og tæki fyrirtækisins hverfa auðvitað ekki. Kannski koma starfsmenn að nýju fyrirtæki byggðu á rústunum.

Bankinn hefur greinilega metið sínum hagsmunum betur borgið með gjaldþroti en að fara afskriftaleið eigendanna sem hefur sennilegast verið hugsuð til á lágmarka þeirra skaða á kostnað annarra.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.5.2010 kl. 23:33

14 identicon

Vígur sá er Lundi heitir

Krímer (IP-tala skráð) 18.5.2010 kl. 01:23

15 identicon

Þetta eru nú meiri snillingarnir sem hér rita visku sína, besta við það er þó að þetta geymist allt á www.mbl.is hjá Davíði Oddssyni vini ykkar.

Ég er viss um að ef farið er yfir ykkar ævistarf, sem eflaust er ekki merkilegt, að þá meigi finna margar misfellurnar. Reynir að sýna samstöðu á sökkvandi skipi í stað þess að rægja skipstjórana, þannig drukknar maður bara.

Stebbi (IP-tala skráð) 18.5.2010 kl. 03:07

16 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Stebbi, ég sé ekki að neitt, sem skrifað er hér að ofan, sé ærumeiðandi eða innistæðulausar aðdróttanir. Þetta eru aðeins vangaveltur fólks sem hefur áhyggjur af ástandinu og ástæðum þess.

Ekki er sá sem þetta skrifar syndlaus og veit af því, en ég þekki menn sem telja sig vera það þó þeir ættu að vita betur. Ekki veit ég hvort þú fyllir þann hóp þar sem þú kýst nafnleysi.

Þér finnst auðvitað að þjóðin eigi að sýna samstöðu og standa keik við bakið á bankadónunum, spilltum stjórnmálamönnum og öðrum sem að skaðanum unnu, í stað þess að gagnrýna og krefjast réttlætis, svo bátnum verði ekki ruggað.

Hvort skrif mín verði geymd í Hádegismóum til nota síðar í þágu lands og þjóðar þegar húsbændum þar hentar, læt ég mér í léttu rúmi liggja.

En ef það gæti glatt þig þá veit ég fyrir víst að ekki eru allir álitsgjafarnir hér að ofan kommar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.5.2010 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband