Skagaströnd ex Höfðakaupstaður

Mér rennur auðvitað blóðið til skyldunnar að benda á nokkrar heimasíður sem þessari frétt tengjast úr því forráðamenn sveitarfélagsins og aðrir búandi , bregða ekki penna til þess.

Fyrst skal telja kennifjall  Skagastrandar Spákonufell, heimamanna á milli yfirleitt kölluð Borgin, síðan Spákonufellshöfða sem í daglegu tali innfæddra er aldrei kallaður annað en Höfðinn og setur sinn sterka svip á byggðina undir Borginni og mótar hafnarstæðið og veitir henni skjól.

Spákonufell er  nefnt eftir Þórdísi spákonu sem bjó á Spákonufelli á Skagaströnd og fóstraði Þorvald víðförla fyrsta kristinboðann á Íslandi.

Á síldarárunum um og eftir seinna stríð  var skipulögð nokkur þúsundmanna byggð á Skagaströnd og var bærinn kallaður Höfðakaupstaður og hélst svo lengi þótt enginn kæmi bærinn.

Ekki ætla ég að rekja síðari tíma afrek Skagstrendinga, enda eru þeir hæfastir til þess núverandi stjórnendur Sveitarfélagsins Skagastrandar, sem áður hét Höfðahreppur,  að rekja sín frægðarverk til eflingar byggðar og mannlífs.


mbl.is Þyrlan lenti á Spákonufellinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Athyglisvert...

Óskar Arnórsson, 27.6.2010 kl. 16:55

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Óskar

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.6.2010 kl. 17:06

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Nei mér fanst allt í einu ég kannast eitthvað við lýsinguna þegar var verið að segja mér frá Merkigili og einhverju þar um kring. Aldrei verið þarna, enn amma heitin ólst þarna einhversstaðar upp...

Óskar Arnórsson, 27.6.2010 kl. 17:23

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Merkigil er eftir minni bestu vitund í Skagafirði, manstu eitthvað frekar um þetta Óskar?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.6.2010 kl. 17:32

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Hún hét Isafold Helgadóttir og bjó þarna á Merkigil. Ég hlustaði nefnilega á endalaust mikið af sögum sem móðir mín sagði mér, allt æfintýri og sumt sjálfsagt satt frá Skagafirði. Og þar komu þessi nöfn upp aftur og aftur. þess vegna varð ég svo hissa þegar ég las pistilinn. Ég sem alveg á núlli í landfræði, og hef aldrei komið þarna, þóttist kannast svo vel við þetta "Borgin" og "Spákonufjall" og svo náttúrulega síldaæfintýrin sem allir töluðu um á þessum tíma. Það eru nú bara liðin 50 ár síðan ég hlustaði á þessar sögur og ekkert spáð í þetta fyrr enn núna. Svo voru náttúrulega endalausar hestasögur sem ég hafði mikið gaman af...Merkigil er í Skagarfirði, ég veit vara ekkert meira enn það. Ég var í Gufudalssveit í Vestur Barðastrandasýslu þar sem faðir minn var bóndi um tíma. 

Óskar Arnórsson, 27.6.2010 kl. 20:28

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hvar í Gufudalnum Óskar?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.6.2010 kl. 09:36

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Eyri eða stundum kölluð Sveinseyri....

Óskar Arnórsson, 29.6.2010 kl. 03:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.