Amen, eftir efninu

Þá vitum við það. 

Ekki hafa aftur orðið pólskipti á ástar og haturssambandi forsetans og þjóðarinnar. Hann er enn hataður af þeim sem þar áður elskuðu hann og enn elskaður af þeim sem þar áður hötuðu hann.

Seint verður hægt að saka forsetann um að vera pólitískur bakherji ríkisstjórnarinnar. Hann er sá öryggisventill þjóðar gagnvart þingi og framkvæmdavaldi sem stjórnarskráin ætlar honum að vera.

Þjóðin á núna völina og kvölina og verður vonandi tilbúin að lifa með eigin ákvörðun, og afleiðingunum.


mbl.is Forsetinn staðfestir ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Til hamingju með daginn, Axel.

Aðalsteinn Agnarsson, 20.2.2011 kl. 15:51

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Með konudaginn Aðalsteinn?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.2.2011 kl. 16:04

3 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Nei Axel minn, heldur það sem Ólafur gerði fyrir þig í dag.

Aðalsteinn Agnarsson, 20.2.2011 kl. 16:11

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vissi það Aðalsteinn, ég mátti til með að stríða þér aðeins.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.2.2011 kl. 16:23

5 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Ég vissi þetta líka, stríðnispúkinn þinn.

Aðalsteinn Agnarsson, 20.2.2011 kl. 17:26

6 identicon

Öryggi er aðeins til í móðurkviði, og þar jafnvel aðeins í ófullkominni mynd, en óþroskaða veran þar inni hefur engan samanburð og heldur sig ranglega vera örugga, því hún er þekkir ekki umhverfi sitt, heldur lifir þarna í hjúpi sem takmarkar veruleika hennar.

 Margir þroskast ekki meira en svo að sækja stanslaust aftur í fals-öryggið. En öryggi er ekki til í lífinu. Hið illa hefði engin völd nema afþví það höfðar til þarfar mannanna fyrir öryggi. Ofsatrú vekur til dæmis mikla öryggiskennd. Þú þarft ekki að hugsa, því bækur og kenningar hugsa fyrir þig, þarft ekki að taka ákvarðanir, bara að kíkja á hvað trúbók eða predikari skyldi segja um málið, og lífið einkennist af mikilli reglufestu og trúarsiðum sem færa þér öryggiskennd. Sama með öfgafull stjórnmál. Hitler sigraði með að höfða til þarfar fólks fyrir öryggi.

Lífið er stríð. Friður er ekki til. Allt sem við berjumst ekki fyrir, eignumst við aldrei, og allt sem við höldum svo ekki áfram að berjast fyrir, missum við. Þetta gildir alveg sérstaklega um frelsið.

Eins og Benjamin Franklin sagði : "Those who would give up essential liberty to purchase a little temporary safety, deserve neither liberty nor safety, and will lose both."

Segjum NEI við Icesave (IP-tala skráð) 21.2.2011 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband