Kusk á hvítflibba

justiceÞetta mál mun klárlega koma til kasta Hæstaréttar. Ég tel fullvíst stjórnarandstöðu dómstóllinn sá muni, án þess að hiksta, hvítskúra sinn mann og blása burt því kuski sem fallið hefur á hvítflibba Baldurs,  fyrir tilverknað illaþenkjandi komma og krata í ríkisstjórninni.

 
mbl.is Baldur í 2 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Ef svo verður Axel, þá er stríðshanskanum endanlega kastað í andlit þjóðarinnar.

hilmar jónsson, 7.4.2011 kl. 12:35

2 identicon

Ekki var nú sjálfstæðismaðurinn Árni jonsen hvítskúraður í hæstarétti. Þvert á móti var dómur hans þyngdur.

Ef síðuhöfundur ætlar að halda því fram að þeir tveir-þrír sjálfstæðisdómarar sem síðan þá hafa verið settir inn í hæsta, geti eitthvað gert, þá er það hæpið - nema náttúrlega svo ótrúlega vildi til að dómurinn verði skipaður fimm dómurum og árni, jón og óli þeirra á meðal.

líklegast er að dómurinn verði skipaður 7 dómurum og jafnvel þótt þessir þrír sýknuðu hann, myndi það ekki duga. þetta fer svona 5-2

william (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 12:57

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

William, Árni Johnsen tilheyrði ekki Eimreiðarhópnum eins og Baldur.

En Árni fékk eftir sem áður sína sérmeðferð.

Þegar forsetinn var erlendis 2006 gripu þáverandi handhafar forsetavalds, Geir H. Haarde forsætisráðherra, Gunnlaugur Claessen forseti Hæstaréttar og Sólveig Pétursdóttir forseti Alþingis, tækifærið og veittu Árna uppreisn æru, að beiðni Björns Bjarnasonar, svo Árni gæti boðið sig fram aftur 2007.

Af hverju var þetta afgreitt í skyndingu í fjarveru forsetans? Var búist við því að forsetinn hefði aðra og óheppilegri sýn á málið? Heldur þú að handhafar forsetavalds hefðu talið svona mikið liggja við að endurreisa æru glæpons úr öðrum stjórnmálaflokki en Sjálfstæðisflokknum?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.4.2011 kl. 17:29

4 identicon

Ólafur hafði ekkert aðra sýn á málið, enda hefði hann þá látið heyra í sér við heimkomuna. Hann er ekki þekktur fyrir að þegja blessaður. Þannig að þetta stenst ekki alveg hjá þér.

Í öðru lagi hafði Geir Harde ímugust á Árna. Það kann að vera að Björn hafi verið höfundurinn að þessari hlægilegu uppreistarvitleysu og verið á þessum tímapunkti svo fullur af ofsóknaræði gagnvart forsetanum að hann hafi "gripið tækifærið" sem var líklega alger óþarfi. Forsetinn hefði sjálfsagt afgreitt þetta eins og hvert annað mál úr því að þingmaðurinn átti rétt á þessu.

William (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 00:15

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þingmaðurinn fyrrverandi átti engan rétt á endurreisn mannorðs síns umfram aðra sem dóm hafa hlotið og stendur ekki til boða svona bakherbergja afgreiðsla.

Ólafur hefur aldrei  opinberlega gert athugasemdir við embættisfærslur handhafa forsetavalds í fjarveru hans, það segir ekkert um það hvort hann hafi haft eitthvað við þær að athuga.

En svo virðist sitthvað glæpon og Sjálfstæðisglæpon. Gunnar Örlygsson þingmaður Frjálslindaflokksins fékk smá dóm fyrir kvótamisferli og dvaldi einhverja daga á Hrauninu. Þegar hann snéri aftur á þing, sté í pontu Davíð nokkur Oddson og sagði það misvirðingu við Alþingi að tukthúslimir tækju þar sæti, slíkir ættu ekkert erindi á hið háa Alþingi og Gunnar ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér.

Nokkrum vikum síðar gekk Gunnar úr Frjálslindum og í Sjálfstæðisflokkinn, þar tók á móti honum Davíð Oddson og bauð hann velkominn í flokkinn með handabandi og brosi á vör. Fortíð Gunnars virtist fyrnast við það eitt að ganga í Sjálfstæðisflokkinn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.4.2011 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband