Víðsýnispillur

Það hlýtur að vera mögnuð upplifun að taka verkjatöflur við tann- eða höfuðverk og losna ekki aðeins við verkinn heldur upplifa heilan dýragarð af bleikum vængjuðum fílum  með doppótt eyru og röndóttar lappir leika flugkúnstir innan um svífandi rauða hvali syngjandi Immigrant song.  

Man það einhver, fór ég í apótekið í dag?

  


mbl.is Mengaðar verkjatöflur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú, jú! Þú varst þarna skrefi á undan mér! Eða var það í síðustu viku...?

Allar þessar dýrategundir, með eyrum, löppum og hvaðeina, þvælast fyrir minningunni. Auðschkilið, ekki sachtt? :-D

Fv. Ybbar Gogg (IP-tala skráð) 27.8.2011 kl. 01:13

2 Smámynd: Magnús Ágústsson

HAHA fyndið ef engin skaði verður

semsagt þegar maður fer í apótekið á maður þá áhættu að fá menguð lyf eða afgreitt vitlaust  

happa glappa hvað

Magnús Ágústsson, 27.8.2011 kl. 02:33

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er mikilvægt að fólk kanni innihaldið í lyfjapokanum áður en það fer út úr apótekinu. Ég nota nokkrar tegundir lyfja. Eitt sinn atvikaðist það að afgreiðslan var ekki rétt, eitt lyfið var annað en það átti að vera.

Ég fór aftur í apótekið og ætlaði að fá leiðréttingu. Jú mikil ósköp þeir voru tilbúnir að taka við lyfjunum - til eyðingar - en ekki endurgreiðslu. Reglugerð bannar þeim, að sögn, að taka aftur við lyfjum sem farið hafa út úr apótekinu, nema til eyðingar. Og þetta apótek nýtti sér þetta til að komast hjá að endurgreiða ranga afgreiðslu. Þetta kallast á íslensku - skítlegt eðli!

Ég þurfti því að bera skaðann sjálfur og greiða rétta lyfið fullu verði - í öðru apóteki að sjálfsögðu.

Ég kíki því í lyfjapokan áður en ég fer út úr apótekinu, til öryggis.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.8.2011 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband