Klæðskerasniðinn dómur að einfeldningshætti Geirs

Niðurstaða Landsdóms er skýr. Heimskan er sýknuð af öllum ákærum og hvítþveginn en lauslega áminnt. Þessi sýknudómur er því þungur áfellisdómur yfir öllu stjórnkerfinu sem slíku.

Að mati dómsins er sem sé ekki hægt að gera þær kröfur til stjórnmálamanna að þeir hafi hina minnstu glóru um það hvað sé að gerast í kringum þá og því síður að gera eigi þær kröfur til þeirra að þeir bregðist við vanda og vá með öðru en kæruleysis viðmótinu „maybe i should have“ og öðrum dóna skap!

Niðurstaða Landsdóms er með öðrum orðum sú, að útilokað sé nokkur taki að sér ráðherraembætti á Íslandi nema vera vanviti  og því gersamlega óábyrgur gjörða sinna. Æskilegt er að forsætisráðherrann toppi þá alla hina vanvitana í réttu hlutfalli við fjölda ráðherra.

Þessi dómur mun vera klæðskerasaumaður að Geir H. Haarde , vesalingnum og kjánanum að tarna.

Geir H. Haarde er hér með dæmdur kjáni og því sýkn saka.

 Málinu lokið.  

 


mbl.is Sakfelldur fyrir eitt ákæruatriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður pistill Axel. Gott að þessu sé lokið. Og eins og þú segir er Geir H. Haarde kjáni, sem á að skammast sín. Sem og allur Sjallaflokkurinn.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 23.4.2012 kl. 14:42

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Geir fór strax að væla um krónur og aura í sambandi við vörnina.

Hann var dóni við fréttamennina, sagði þá ekki vita um hvað þeir ættu að spyrja, svona að ný uppkvöddum dómi! Halló! Sami helvítis dóninn og fyrr!!

Er nema von að menn haldi ekki vatni af aðdáun á þessu skrípi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.4.2012 kl. 14:59

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Hérna spara menn ekki stóru orðin.

Í hópi þeirra sem hæst hafa hrópað að einhvern eigi að kæra fyrir eitthvað í tengslum við hrunið hefur yfirleitt vantað eitt atriði: Ef allt það sem þó var gert var "ekki nóg", hvað átti þá að gera?

Geir Ágústsson, 23.4.2012 kl. 15:04

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Var það ekki einmitt eitt af því sem um var fjallað í dómnum  Geir?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.4.2012 kl. 15:21

5 identicon

Karlinn dæmdur kjáni.... og við til að borga málskostnað kjánans.

DoctorE (IP-tala skráð) 23.4.2012 kl. 15:29

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér fannst einkennilegast að heyra að hann talaði um það sem hann var dæmdur fyrir sem hlægilegt smáatriði.  Það var eins og hann vissi ekki að þetta er allt ekki smáatriði, né eitthvað sem ekki kemur hruninu við.  Þetta var einmitt ein af ástæðum þess hversu hrikalegt hrunið varð, þ.e. að þetta skyldi ekki vera rætt af ríkisstjórninni.  En hann var greinilega afar reiður. Hefði sennilega ekki átt að tjá sig svona snemma. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2012 kl. 15:31

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Og Geir var ekki nafni þinn sakfelldur fyrir að halda ekki fundi en taka þess í stað einræðislegar ákvaraðair um eitt og annað af því honum fannst ekki umræðuefnið passa við viðkomandi ráðherra?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.4.2012 kl. 15:31

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ásthildur, ætli hann hafi verið að tjá sig um einhvern annan dóm?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.4.2012 kl. 15:33

9 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Enda sjáum við vanvitana sem eru við stjórn í dag.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 23.4.2012 kl. 17:01

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég veit það ekki, en þvílík blinda og hroki. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2012 kl. 17:10

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ef brotið var stórfellt, hvers vegna er maðurinn ekki dæmdur til refsingar? Er það mögulega vegna þess að refsiramminn er ekki til fyrir svona brot?

Theódór Norðkvist, 23.4.2012 kl. 18:54

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það hefur margoft gerst Theódór að mönnum hafi ekki verið gerð refsing, þrátt fyrir felldan dóm.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.4.2012 kl. 21:16

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er litið til þess að þetta er dómur yfir stjórnsýslunni í heild en ekki bara Geir, þess vegna er honum ekki refsað.  Þetta eru skilaboð til fyrrverandi og núverandi stjórna Íslands.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2012 kl. 21:52

14 Smámynd: Jón Óskarsson

Þegar fólk getur hætt að hugsa nýfallinn dóm út frá því hvort það hati Geir eða elski hann þá verður kannski hægt að tala málefnalega um þessi mál.

Landsdómur er að senda stjórnsýslunni allri skýr skilaboð.   Hefðir og venjur undanfarinna 94 ára hafa farið á skjön við stjórnarskrá.

Þessum vinnuháttum verður að ljúka hér með og það þarf að setja um starfssvið ríkisstjórna og almennt um alla stjórnsýsluna skýrari lög og reglur.  

Ráðherrar í öllum ríkisstjórnum eru fljótir að hvítþvo sig varðandi málefni sem ekki heyra "beint" undir viðkomandi ráðherra, en eru þess á milli að skipta sér af og tjá sig um málefni sem eru á starfssviði annarra ráðherra.

Fundir ríkisstjórna eru oft ómarkvissir, fundargerðir fyrir neðan allar hellur, ráðherrar ekki upplýstir um gang mála, vantraust milli manna í ríkisstjórnum og fleiri vandamál.

Mörgum sinnum á hverju ári heyrum við fréttir af því að ráðherrar hafi leynt upplýsingum.  Við sjáum dæmi (t.d. nýlega) um að forsætisráðherra boðar ekki þá þegar til funda þegar honum berast upplýsingar í hendur.

Jón Óskarsson, 24.4.2012 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband