Hvað þarf gjaldmiðill að heita til að teljast traustur?

Þó Ísland hafi sótt um inngöngu í ESB, er fátt sem bendir til þess, þessa stundina, að af þeim samruna verði í sjáanlegri framtíð og að Evran verði einhvern tíma gjaldmiðill hérlendis.

Því hafa ýmsir spekingar kallað eftir því að gjaldmiðill annars lands verði tekinn upp hér á landi nánast „ófrjálsri hendi“ ef þannig má að orði komast, án samþykkis viðkomandi lands, ef ekki vill betur.

En þarf þess? Er ekki nægjanlegt að lögbinda gengi krónunnar við vænlegasta gjaldmiðliðin með þeim hætti að einföld lagabreyting á Alþingi gæti ekki breytt því. Meira þyrfti til, jafnvel stjórnarskrárbreytingu ef því væri að skipta.

Væri þá ekki Íslenska krónan sem slík orðin ígildi viðkomandi erlenda gjalmiðils, án þess að erlenda myntin væri innleidd sem slík?

Það eina sem þarf í raun til að ná stöðuleikanum er að svipta íslenska stjórnmálamenn valdinu að fikta við eða fella gengi krónunnar, sem þeir hafa gert svikalaust áratugum saman til að afturkalla hvern kjarasamninginn eftir annan áður en blekið á þeim þornaði eða framkvæma önnur efnahagsleg „töfrabrögð“.

Sú „frelsis svipting“ íslenskra stjórnmálamanna er í raun eini ávinningurinn sem ég í augnablikinu sé af inngöngu í ESB.

En auðvitað hef ég ekkert vit á þessu, ég er aðeins að „hugsa upphátt“!

 

   


mbl.is Segir stuðning við Kanadadollar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hugsaðu sem oftast upphátt! Sperri eyrun þegar fólk hugsar þaða sama og ég - upphátt...! ;-)

Ybbar-gogg (fyrrverandi) (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 00:02

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 00:13

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Hananú... alltaf eru fleiri og fleiri sem ég er venjulega ósammála að hljóma ekki bara gáfulega heldur samhljóma.

Er ég að breytast eða þeir?

Eitt er það reyndar Axel. Ef við bindumst án ESB einhverjum gjaldeyri er það okkar einna og okkar seðlabanka að halda genginu en ESB/EUR myndi annars bakka okkur upp.

Annað er að 80% okkar gjaleyristekna er í EUR og þessu vegna færum við á krossgengismarkað með all sem í kassan kemur sem er aftur ekkert betra en kr+onuræksnið.

Hafðu það sem best :)

Skari Skítalykt.

Óskar Guðmundsson, 26.5.2012 kl. 03:10

4 identicon

Það er rangt að 80% okkar gjaldeyristekna séu í EUR. Þær eru að mestu leyti í USD, en EUR kemur þar fast á eftir. Hagstofan er með þetta allt skráð vel og vandlega.

Páll Sigurðsson (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 04:00

5 identicon

Margir menn sem hafa mikið vit á hafa rætt þann möguleika mjög alvarlega að okkar raunverulegu hagsmunir felist ekki í að ganga í ESB (sem er veldi stjórnað af hötuðustu þjóðum heims, þjóðum með afarslæmt karma, sem mun ekkert endilega farnast vel í Nýja Heiminum sem er að verða til fyrir framan augun á okkur, og mun aðallega stjórnað af þeim sem þessar þjóðir áður kúguðu (, þegar Indland verður nýja þungamiðja heimsins). Frakkar og fleiri halda enn heilu þjóðunum í skuldafangelsi, raunveruleg ástæða fátæktar Haítíbúa er til dæmis ekkert nema þjóðarskuld þeirra við Frakka. Átök eins og Make Poverty History miðla að því að gefa upp skuldir þriðja heimsins, sem myndi um leið minnka verulega vald og auðæfi þeirra þjóða sem ráða í ESB, og bandalagsins sjálfs sem slík, og minnka vald þess enn frekar, en Evrópa er deyjandi eining, og á það fyllilega skilið. Bretar eru hvað frægastir fyrir arðrán sín á öðrum þjóðum og eiga met í slíku ásamt Frökkum. Litlar þjóðir sem engu máli virðast skipta eins og Belgar hafa líka sett sinn sótsvarta blett á mannkynssöguna, og þjóðarmorðin nýlegu í Rúanda eru til dæmis í raun sök Belga, sem klufu í reynd þessa þjóð í tvennt, ákvörðuðu að einn ættflokkurinn væri æðri öðrum, og kenndu þessa speki þarna, og til varð sár sem líklega mun ekki gróa næstu áratugina eða aldirnar. Fleiri þjóðir mætti nefna. Og bandalaginu sem slíku er auðvitað stjórnað af Þýskalandi, sem er heimsins hataðasta ríki, sökum glæpa sinna gegn mannkyninu og heimsmeti í ágirnd og kúgun, sem þeir settu þegar þeir létu sér ekki næga að gera fyrst eignir stórs hluta þjóðarinnar upptækar, og mergsjúga þá síðan með þrælkunnarvinnu af erfiðustu sort við verstu hugsanlegu aðstæður, heldur héldu áfram að blóðmjólka sína eigin þegna áfram eftir dauðan og bjuggu meðal annars til sápur úr líkum lítilla gyðingabarna, sem voru síðan seldar í búðum, ríkinu til tekna. Önnur eins fégræðgi og viðbjóður hefur aldrei þekkst. Þýskaland efnaðist stórlega á þessum viðurstyggilegu morðum sínum, og velgengni margra stærstu þýsku fyrirtækjanna var upprunalega byggð á illafengnu gyðingagulli. Barnabörn nasista sem voru heilaþvegnir í Hitlers æskunni stjórna nú ESB, en tilheyra þjóð sem ekki hefur enn styrk eða hjartalag til að vera meiriháttar leikmaður á hinum alþjóðlega velli, til þess skortir hana einfaldlega tilfinningu fyrir bræðralagi mannkynsins. Margir Þjóðverjar eru afarvandaðir menn, en þú læknast ekki af svona hryllingi eða borgar fyrir svo hræðilega synd á örfáum áratugum. Þetta er þjóðin sem startaði báðum heimsstyrjöldunum. Viljum við virkilega að hún leiði okkur, inn í hræðilega samsekt með fyrrum nýlendukúgurunum meðstjórnendunum hennar, í heimi sem mun alls ekki tilheyra Evrópu, heldur verður hún þar einungis minniháttarleikmaður, enda sneydd flestum náttúrulegum auðæfum umfram aðra heimshluta, og háð fyrrum þrælaþjóðum sínum um þær flestar, auk þess sem hún er lítil landfræðilega séð og menningarlega fölnandi og siðferðilega hnignandi um þessar mundir?

 Nei, það viturlegasta fyrir okkur væri að stofna Norðurbandalag, með öðrum þjóðum líkum okkur sjálfum, sem eru blessaðri af náttúrulegum auðlindum og tækifærum sem því fylgja, og/eða betra mannorði og hreinni skyldi en þjóðir Evrópu, og þar af leiðandi líklegra til að við verðum ekki látin borga skuldir Evrópu með henni þegar að réttlátum reikningsskilum kemur og höfð verða valdhafaskipti í þessum heimi. Nokkuð sem mun gerast bráðum og fyrr en flesta grunar. Það er því lítill tími til að losna undan því að í stað þess að verða frjáls þjóð, rík af auðlindum og tækifærum, verða hlekkjaður við nýlendubáknið og því litið á okkur sem samsek því. Okkur væri mun nær að bindast þjóðum eins og Noregi, Færeyjum og Grænlandi þegar þau losna undan kúgun Dana, sem hefur sérstaklega farið illa með Grænlensku þjóðina, og mögulega leita lengra austur sem og suður, og að sjálfsögðu til Kanada, sem er í reynd sú þjóð sem kemur okkur mest við í heiminum. Þar býr jú mannsfjöldi sem samsvarar sirka helmingi allra íbúa Íslands sem lítur á sig sem Íslendinga, og/eða velgjörðarmenn og vini Íslands, fólkið sem flúði þangað þegar náttúruhamfarir hér gengu að nær þriðjungi þjóðar okkar dauðri á sínum tíma. Þetta eru raunveruleg og sönn tengsl, ekki byggð á ímyndunarveiki og minnimáttarkennd eins og tengslin sem fólk sem erft hefur Danasnobb og Stokkhólmssyndrome, og vissan heimóttarskap og fáfræði, telur sig ranglega finna við Evrópu. Hálft Ísland er á Ameríkuflekanum og það væri nær að finna það sem er einstakt, eða alla vega sérstakt við okkur, um leið og við eflum tengsl við andlega skyldar þjóðir, tengsl byggð á sanngirni og sem jafningjar, heldur en að verða einhver misheppnuð gerfi-meginlandsþjóð. Nóg er af ósannfærandi hallærislegheitum nú þegar, og rót snobberís af þessu tagi er kúgun og þrælslund sem lítt er til prýði. Frelsiselskandi Íslendingar verða að leiða aðra hér til betra lífs, og forða þeim frá því að steypa sér í glötun af yfirborðsmennsku og fáfræði. Verum þakklát fyrir að eiga góðan forseta með heilsteypta framtíðarsýn sem hefur vit á að efla tengslin við Indland og tryggja langtímahagsmuni okkar. Heimsborgari getur aldrei verið Eurocentric í senn. Eurocentricismi er ein tegund úrelts rasisma og sveitamennsku.

Jóhann (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 05:53

6 identicon

Og sumir valdamestu menn heims hafa orðið siðferðið til að segja upphátt og á almannafæri það sem þeir sem vita sínu viti ræða í myrkvuðum reykherbergjum http://www.bbc.co.uk/news/uk-politics-12233939 Cameron veit hvað hann er að gera. Bretar eru við það að glata Skotlandi, en flestir Skotar vilja þess í stað styrkja tengsl sín við Norðurlöndin. Írland er nær alfarið nú þegar, Norður Írland mun fylgja. Síðan mun Bretland klofna enn frekar. Englendingar sjálfir vilja þó enn meir en allar þessar þjóðir losna út úr ESB, en meirihluti landsmanna þar skv skoðanakönnunum vil út úr ESB um þessar mundir. Það er nóg að burðast með að vera Breti þó maður þurfi ekki líka að vera hálfpartinn þýskur þegn um leið, og Bretar hafa nóg með að borga sínar eigin skuldir. Framtíðin verður þeim mun blíðari en hún verður Þjóðverjum og Frökkum og það eru ákveðnar ástæður fyrir því...Cameron veit nákvæmlega hvað hann er að tala um, þó hann láti ekki mikið uppi...

Jóhann (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 06:01

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Axel, þetta er ekki spurning um nafn gjaldmiðilsins heldur er verið að tala um aðferðina við að skipta um gjaldmiðil.  Það er ekki nokkur spurning að með því að taka upp einhvern gjaldmiðil EINHLIÐA, sama hvaða nafn hann ber og óháð "styrkleika" hans, værum við bara að "PISSA Í SKÓINN OKKAR" og við hefðum ENGAN hag af því eina sem við hefðum út úr því væri gríðarlegur kostnaður og amstur.................

Jóhann Elíasson, 26.5.2012 kl. 08:09

8 identicon

Sæll.

Mig er nú farið að gruna að Heiðar eigi persónulegra hagsmuna að gæta, að það sé honum fjárhagslega í hag að tekin verði upp önnur mynt hér.

Helgi (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 09:47

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jóhann (#5) ég fæ ekki betur séð en hatur og óvild sé rauði þráðurinn í afstöðu þinni til annarra þjóða. Hún virðist byggð á hegðun og gerðum afa og ömmu, verkum genginna kynslóða.

Þú segir þjóðverja hötuðustu þjóð heims og nefnir voðaverk þeirra í stríðinu. Það var ekki þýska þjóðin í dag sem framdi þau, heldur áar þeirra. Þeir sem hata þjóðverja í dag fyrir glæpi afa þeirra eru þeir sem eiga við vandamál að stríða, ekki núverandi íbúar Þýskalands.

Það er undarleg afstaða að hata aðra af þeirri ástæðu einni að afi þeirra eða faðir hafi gert það. Syndir feðrana ganga ekki í erfðir, þó sumir reyni hvað þeir geta að hafa það þannig.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 11:59

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

..og Jóhann, smá viðbót. Það er góð regla að hafa greinaskil annað veifið. Langur samfelldur texti er afar erfiður aflestrar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 12:01

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jóhann Elíasson, helsti kosturinn við upptöku erlends gjaldmiðils er að mínu mati að með því verður frá Íslenskum stjórnmálamönnum sá möguleiki að hræra í genginu.

Alla síðustu öld voru gengisfellingar í raun eina hagstjórnin sem þeir beittu og sönnuðu þannig að þeir kunnu ekkert með það vald að fara.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 12:07

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Óskar, takk fyrir innlitið og þitt innlegg.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 12:07

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Páll, takk fyrir innlitið og upplýsingarnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 12:08

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Helgi, auðvitað á hann hagsmuna að gæta.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 12:09

15 identicon

Getur einhver útskýrt fyrir mér. Hverjum datt í hug, að það væri góð hugmynd að fela ráðherrum eitthvað vald í seðlabankanum. Er það ekkki pínu eins og að afhenda barni hlaðna byssu?

Þannig séð ætti maður alltaf að vilja hafa manneskju sem veit eitthvað um málið í stjórnunar stöðum.

Halli Hlö (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 15:41

16 identicon

Ég hata ekki Þjóðverja, heilaþvottur af öllu tagi gengur hins vegar í erfðir, hefur ekkert með "syndir" að gera sem er trúarlegt hugtak. Ef afi þinn og amma þvoðu sér með sápu úr líkum gyðingabarna, og þetta gerðu afar og ömmur Þjóðverja, því ríkisstjórnin hélt áfram að blóðmjólka þessa þegna sína eftir dauðann með gerð sápna, lampaskerma og fleira úr líkum þeirra, þá losnarðu ekki undan þeim heilaþvotti sem þurfti til að slíkt gæti átt sér stað á örfáum áratugum, og því miður eimir eftir af honum hjá milljónum þar í landi, þó gott fólk eins og Angela Merkel sem lét lögleiða Gyðingdóm sem annað trúarbragð landsins og gerði fleira smekklegt til að bæta fyrir brotin með táknrænum hætti sé þar líka að finna, og meirihlutinn sé auðvitað bara sömu heilalausu hálfvitarnir og meirihlutinn almennt er alls staðar, en hvorki nazistar né afburðarmenn. Heilaþvotturinn situr aftur á móti eftir og er ástæðan fyrir ást Þjóðverja á óhóflegum lögum um alla skapaða hluti, reglugerðar obsession og almennri afskiptasemi af náunganum og takmarkanir fram úr hófi á frelsi hans. Þetta eru bara leifar fasisma og því miður er þetta ráðandi afl Evrópu en ekki betur upplýstar þjóðir. Það er heldur ekki hatur af minni hálfu að hafa búið á Indlandi og ferðast nóg um Afríku nógu lengi til að VITA hvernig heiminum er innanbrjóst gagnvart Evrópu, og það er ekki hatur að hafa þá réttlætiskennd að skilja að þegar Evrópa verður látin borga fyrir það sem hún skuldar fyrir að blóðmjóla og eyðileggja þessar þjóðir, þá verður það með fullum rétti og til hagsmuna alls mannkynsins. Evrópa sem hugtak og eining verður að deyja, til að einingin Mannkynið fái að blómstra, því þetta er hugmynd frá gömlum tíma sem byggði á öðrum gildum, þegar deyjandi öfl voru við völd í heiminum okkar, kóngur og páfi, og þar með ekki ógn fasismans, sem verður ekki burt þokað með öllu fyrr en vald Evrópu verður tekið frá henni og fært í hendur mannkyninu.

Jóhann (IP-tala skráð) 27.5.2012 kl. 06:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.