Femínfasisminn nær nýjum hæðum

Femínistafasistum eru greinilega engin takmörk sett í þeirri ætlan að þvinga fram, með góðu eða illu, þeirri ætlan sinni að bæði kynin verði á endanum eins.

standandi bannFemínfasistar í Svíþjóð og víðar í Evrópu telja að nauðsynlegur  áfangi á þeirri vegferð sé að banna karlmönnum að pissa standandi.

Banni við standandi pissi þýðir auðvitað að pissuskálar hverfa og klósetin ein verða í boði. Hvernig sem boðum og bönnum verður hrúgað yfir samfélagið verða alltaf til sóðar, bæði menn og konur. Sóðar sem hafa ekki lært að lyfta setunni áður en þeir míga munu ekki frekar geta lært að pissa sitjandi og munu því halda áfram að míga út seturnar hvað sem öllum femínfasisma líður.

Útmigin seta þýðir bara eitt, að enginn sest á klósetið þann daginn, eða snertir á henni  til að lyfta henni, allra síst öfgafullar femínistapjattrófur. Þeir munu því jafnt og aðrir pissa standandi og á setuna þann daginn. Þessi fasismi mun því ekki draga úr sóðaskap, heldur þvert á móti auka hann til muna.

Þá verða  eftirlitsmyndavélar á salernum væntanlega næsta innlegg femínista til að ná fullri stjórn á þvaglátum manna.

 


mbl.is Banna körlum að pissa standandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.