Það sem aðrir mega vita en ekki við

Bresk stjórnvöld hafa samið við Íslensk stjórnvöld að þeim verði veittar upplýsingar um bankareikninga Breta hér á landi. Samningurinn var gerður til að auka upplýsingaflæði og gegnsæi að sögn fjármálaráðherra Bretlands, George Osborne.

Þetta er allt gott og blessað.

Hvernig væri að þessi sömu Íslensku stjórnvöld gerðu líka samning við Íslensku þjóðina og upplýstu hana hverjir eiga Íslensku bankanna og hverjir eru helstu kröfuhafar föllnu bankanna?

Eða er gegnsæi ekki fyrir heimska Íslendinga?


mbl.is Upplýsa um bankareikninga Breta á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hversvegna er verið að gera samninga við fólk sem hefur líst okkur gjaldþrota hryðjuverka menn, ég bara spyr? 

Á maður virkilega að trúa því að mynni  Íslenskra stjórn málamanna sé ekki merkilegra en þetta?

Hrólfur Þ Hraundal, 30.11.2013 kl. 09:54

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Á að þínu áliti Hrólfur að sniðganga Bretland að öllu leiti um aldur og ævi? Þú verður að ræða þetta við þína menn í stjórnarráðinu, þeir eru þarna á þína ábyrgð, ekki mína.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.11.2013 kl. 13:12

3 identicon

Íslensk stjórnvöld hefðu allavega átt að krfjast að leynireikingar á Jersey væri inní pakkanum !

Íslenskir ræningar eiga þar digra sjóði.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 2.12.2013 kl. 14:02

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Samningurinn virðist aðeins gilda í aðra áttina Birgir, að veita Bretum upplýsingar um breskar innistæður hér, en ekki hið gagnstæða. Sennilegast vilja núverandi stjórnvöld á Íslandi ekkert af íslenskum leynireikningum erlendis vita. 

Hvað heldur þú um það Hrólfur?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.12.2013 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband