Ærandi þögnin

Fátt hefur verið meira í umræðunni undanfarið en völt staða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Hanna Birna þvertekur fyrir að hafa aðhafst eitthvað aðfinnsluvert í rannsókn lekamálsins. Hún viðurkennir  jú, jú, að hafa hringt í lögreglustjóra á rannsóknartímanum! En alls ekki undir því yfirskini að ræða lekamálið nei, nei! Þó hafi málið verið rætt, já, já, mikil ósköp! En þó alveg án þess að hún væri nokkuð að skipta sér af rannsókninni!  Alveg magnað!

Á Moggablogginu hafa hægrimenn farið mikinn og ásakað  vonda vinstrafólkið um skipulagða aðför að  vammlausri heiðurskonunni.  Sumir fara hamförum og senda frá sér stöðugt nýjar samsæriskenningar eftir því hvaðan vindurinn blæs.  Allir sem koma að málinu eru gerðir tortryggilegir og ekki hvað síst embættismenn,  t.a.m. Umboðsmaður Alþingis og  Saksóknari, sem er jú víst sérleg senditík  vinstri klíkunnar. Svo er ráðherrann auðvitað á aftökulista RUV!

En þessir bloggarar minnast ekki einu orði á eitt hrópandi atriði, stóru þögnina. Hina ærandi þögn formanns Sjálfstæðisflokksins og annarra forystumanna flokksins.

Hanna Birna segist hafa fullan stuðning ríkisstjórnarinnar og flokksins. Hún virðist ein til frásagnar um það því enginn hefur stigið fram í þeim tilgangi. Frá Bjarna Ben og nánustu klíkunni í kringum hann heyrist  ekkert. Nákvæmlega EKKERT til stuðnings Hönnu Birnu. Frá þeim fróma hópi heyrist aðeins ærandi þögnin. Það segir manni að ef ekki  er beinlínis róið gegn Hönnu Birnu á þeim bæjunum, þá  grætur Bjarni og hirð hans krókódílatárum yfir stöðugt versnandi stöðu ráðherrans.

Hver hagnast mest á því að undan innanríkisráðherranum fjari sem mest og að hún komi á rassgatinu út úr þessu máli? Að Hönnu Birnu pólitískt genginni er í bráð enginn sýnilegur kandídat í Sjálfstæðisflokknum til að ógna formannstöðu Bjarna Ben.

Fyrir nokkrum mánuðum var staða Hönnu Birnu hinsvegar svo sterk innan flokksins gagnvart veikri stöðu Bjarna að Hanna Birna hefði aðeins þurft að gefa merkið og hallarbylting í Sjálfstæðisflokknum verið staðreynd, en hún þorði ekki. Bjarni vill eðlilega ekki vinna að því að fá þá stöðu upp aftur.

Núna þorir Hanna Birna ekki heldur að gera það eina rétta því þá væri hún, að eigin sögn, að svíkja allt það góða fólk sem treystir á hana.

Það er sannarlega böl að vera ómissandi.


mbl.is Valtýr segir Hönnu Birnu eiga að víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Samkvæmt samsæriskenningunni þá er formaður Sjálfstæðisflokksins með í samsærinu gegn Hönnu Birnu. Einnig umboðsmaður alþingis, lögreglustjóri og ríkissaksóknari. Davíð er búinn að birta þetta í Mogganum, þannig að hann styður samsæriskenninguna.

Davíð þekkir vel til hvernig hlutirnir voru framkvæmdir þegar hann var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra. Hann telur líklegt að svona sé í pottinn búið núna. Nú, þá er líklegt að samsæri eins og lýst er á síðum Moggans séu ekkert nýtt fyrir hann og hafi verið stunduð hér áður of fyrr, úr því að honum finnst þetts svona trúlegt núna.   

Sveinn R. Pálsson, 2.8.2014 kl. 22:20

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég get ekki sagt að þetta sé samsæriskenning, þetta er bara ósómi, sem þarf að koma frá.Manneskjan er algjörlega að ganga fram af almenningi í landinu og það þarf einfaldlega að stoppa það af, einfalt og klárt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.8.2014 kl. 23:12

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Davíð kann þetta Sveinn, vanur maður. Varast skal að treysta nokkru frá þeim manni.

Ásthildur, almennir borgarar, sem sæta rannsókn, geta samkvæmt þessu fengið fund með lögreglunni til að ræða viðkomandi rannsóknin! Aðeins þarf að passa að biðja ekki um fundinn í því yfirskyni.

Almenningur þarf jafnvel að sæta gæsluvarðhaldi til að rannsóknarhagsmuna sé gætt, en ráðherrann hann þarf ekki einu sinni að víkja af vettvangi glæpsins, hvað þá meir! Svo er okkur sagt að allir séu jafnir fyrir lögum! 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2014 kl. 06:43

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.8.2014 kl. 10:25

5 identicon

geta menn ekki látið konuna í friði,

hvurslags hýenuháttur er þetta?

svo þegar bankar eru tæmdir og icesave

hafnað af erlendum dómstólum eru menn

stilltir og prúðir, það er greinilegt að má ráðast á

suma en ekki aðra!

gunnar (IP-tala skráð) 3.8.2014 kl. 16:13

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Svo skal böl bæta.......

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2014 kl. 16:53

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er von að stjórnsýslan sé eins og hún er, þegar almenningur sér ekkert að svona stjórnsýslu og kallar þetta einelti og yfirgang, þegar augljóslega eitthvað hefur farið útskeiðis og þarf að laga það.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.8.2014 kl. 17:44

8 identicon

Hanna Birna og aðstoðarmenn hennar eru blásaklaus af þessu máli. Hins vegar er það DV, sem hefur falsað opinber gögn.

Þótt ég sé lítt hrifin af Hönnu Birnu, aðallega vegna óljósrar afstöðu hennar til ESB, þá hvet ég hana til að láta ekki undan þrýstingi minnipokamanna. Varðandi soravinnubrögð sorpsnepilsins DV, lesið bloggfærslu Páls Vilhjálmssonar:

http://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/1420649/

Pétur D. (IP-tala skráð) 3.8.2014 kl. 17:47

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ef þú býrð yfir einhverjum upplýsingum Pétur, sem sanna sakleysi HB og hennar undirmanna átt þú auðvitað að fara með þær upplýsingar rakleiðis til lögreglunnar svo hægt sé að hreinsa hina grunuðu af sök.

Þó Páll Vilhjálmsson trúi því að hann sé handhafi stórasannleiks hefur gengið illa að fá það staðfest. En þeir sem vilja trúa því með honum að bloggfærslur hans séu ígildi ritningagreina, ættu ásamt honum að íhuga formlega stofnun sértrúarsafnaðar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2014 kl. 18:32

10 identicon

Af öllu sem ég hef lesið í fréttum um þetta mál er ekkert sem bendir til að Hanna Birna sé sek um neitt, enda standa öll spjót á DV og flugumönnum þess sorpsnepils. Enginn skyldi leggja trúnað á neitt sem stendur í DV, enda þekkt fyrir málatilbúning og lygar í pólítískum tilgangi. Að Sigríður Friðjónsdóttir lætur DV leiða sig á asnaeyrunum í þessu máli er ekki henni til framdráttar, enda ætti hún einnig að rannsaka hlutdeild DV í lekanum og þeirri fölsun á minnisblaðinu sem DV framkvæmdi eftir lekann. Götublaðið News of the World var lagt niður fyrir minna en þetta.

.

Og Valtýr Sigurðsson hefur ekkert til málanna að leggja, enda er hann mjög fyrrverandi. Og auk þess skín hræsnin í gegn, því að eins og Páll Vilhjálmsson benti á er hann að gera kröfur til annarra sem hann getur ekki sjálfur staðið undir.

Pétur D. (IP-tala skráð) 3.8.2014 kl. 20:33

11 identicon

Leiðrétting:

"Að Sigríður Friðjónsdóttir lætur DV teyma sig á asnaeyrunum í þessu máli er henni ekki til framdráttar"

P (IP-tala skráð) 3.8.2014 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband