Þeir eru spaugsamir á RUV

animal_farm.jpgÉg hélt að forsýning á áramótaskaupinu væri hafin áðan þegar flutt var frétt í Sjónvarpsfréttum þess efnis, að þó Hanna Birna hefði sagt af sér embætti innanríkis- ráðherra þá bæri hún ábyrgð á ráðuneytinu þar til nýr ráðherra hafi verið skipaður!

Nú þykir mér skörin farin að færast upp í bekkinn!

Hvernig getur ráðherra, sem er hættur, borið ábyrgð á ráðuneytinu sem hann bar enga ábyrgð á, meðan hann var í embætti? Hanna Birna margítrekaði að hún gæti ómögulega borið ábyrgð á gjörðum undirmanna sinna í ráðuneytinu, ekki einu sinni á sérlegum pólitískum aðstoðarmanni sínum.

Þarf þá að ræða þetta eitthvað frekar?

Ráðherrarnir íslensku minna á tryggingafélögin, hjá þeim eru menn tryggðir fyrir öllu öðru en akkúrat því sem gerðist!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Axel Jóhann - sem og aðrir gestir þínir !

Íslenzkt samfélag - er orðinn HREINRÆKTAÐUR viðbjóður / fyrir tilstilli flokkanna 4urra (+ þess 5. / ''Bjartrar'' framtíðar) og því miður: kjósenda þessa liðs / kjörtímabil eftir kjörtímabil.

Því skyldi ekki nokkurn mann undra - þó hratt fjari hér undan / með þetta lið innanborðs: fornvinur góður.

Með beztu kveðjum sem oftar - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.11.2014 kl. 20:21

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hvað ertu að kvarta, maður? Fær hún ekki að vera áfram á fullum ráðherralaunum? Fær hún ekki fullt frí frá þingmennskunni, svo að hún og við losnum við óþægilegar spurningar þar? Hefur hún ekki líka tilkynnt, að hún fari ekki í nein fjölmiðlaviðtöl? Sem sagt algjör friður og málið búið!!!

Gaman að vera strútur sem stingur hausnum í sandinn á fullu kaupi, hlýtur bara að vera!

Erum við annars ekki orðnir sammála einu sinni á ævinni, Axel karl?

Jón Valur Jensson, 22.11.2014 kl. 20:46

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er allt stjórnkerfið orðið illa rotið Óskar, orð að sönnu!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.11.2014 kl. 10:41

4 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Það fór um mig æðisgengur hrollur, eins og jafnvægið í heiminum hefði raskast. 
Nú hef ég skýringu mína á því, Jón Valur! laughing

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 23.11.2014 kl. 11:49

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Honum getur ekki verið sjálfrátt Inga. Fullur eða uppdópaður, nema hvoru tveggja sé!sealed

Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.11.2014 kl. 05:01

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hef ekki smakkað það mánuðum saman, Axel karl, og neyti ekki dóps!

Greinilega komstu í algera sjálfheldu að fá skeytið frá mér, "kjaftstopp" kalla menn það -- þér er svo uppsigað við mig, að þú getur naumast hugsað þér, að við séum sammála í einu eða neinu!

Miklu skárra að fá svona véfréttarsvar frá henni dóttur þinni. smile

Jón Valur Jensson, 25.11.2014 kl. 00:38

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvað er að gerast? Það er ekki nóg með að við séu sammála Jón Valur heldur erum við báðir á snúrunni líka.

Mér er nú ekki meira uppsigað við þig Jón Valur en það, að hér ert þú sannarlega inni á miðju gólfi hjá mér í fullu ritfrelsi, meðan mér er úthýst frá þinum ritvelli. Það hallar því heldur á þig í óvildinni, sannarlega!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.11.2014 kl. 05:25

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hehehe. Ertu þá hættur að brjóta skilmála innleggja þar?

Jón Valur Jensson, 25.11.2014 kl. 11:21

9 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Jón Valur !

Það verður nú að viðurkennast - að þetta ''skilmála'' kjaptæði á þinni síðu (sjálfsagt: öllum síðum þínum - hér á vefnum) er orðið mjög þreytt afsökun fyrir ritskoðunar tilburðum þínum:: ekki einungis gagnvart okkur Axel Jóhanni einum og sér - heldur og fjölda annarra.

Það - er nú meðal ástæðna þess / að ég er hættur að hripa niður athugasemdir hjá þér: þá hin ýmsu tilefni gæfust til.

Lítið varið í - að vera að setja inn athugasemdir hjá mönnum / sem eru í þessu skapinu þennan daginn - og hinu hinn: Jón Valur.

Svo - fram komi: að nokkru.

Sérvizku klásúlur ýmissa síðuhafa - geta einfaldlega verið óþolandi viðskiptis sem leiðigjarnar mjög: þér að segja.

En - fullkomnunarþörf sumra sem þráhyggja: hlýtur að vera eins konar Myllusteinn / um háls viðkomandi handhafa: jafnt spjall (blog) síðna hér á Mbl.vefnum - sem annarrs staðar.

Með beztu kveðjum - sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.11.2014 kl. 12:22

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert nú bara fyndinn, Óskar minn Helgi –– sem oftar. smile

Ég er hins vegar, eins og þú veizt, alveg innocent

(Mátti til með að stríða þér, hef aldrei gripið til þessa fyrr!)

Jón Valur Jensson, 26.11.2014 kl. 02:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband