Stálu þeir brauði úr Bónus?

Greinilegt er að dómskerfið lítur brot bankabófanna mjög alvarlegum augum! Enda er dómurinn yfir þessum ofurkrimmum, forvígismönnum græðginnar og ábyrgðamönnum hrunsins á svipuðu róli og dómar sem felldir hafa verið yfir útigangsmönnum fyrir að hnupla brauði  úr Bónus, til að seðja sárasta hungrið.


mbl.is Kaupþingsmenn sakfelldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst nú vera frekar lítið samræmi í dómunum, þessir menn hefðu átt að fá einhverja tugi ára án möguleika á lausn í fangelsi ef einhvers jafnræðis væri gætt.  Stundum virðis brauðið í Bónus vera ansi "HÁTT" verðlagt, það er auðvitað ekki sama frá hvaða framleiðanda það er...cool

Jóhann Elíasson, 12.2.2015 kl. 20:45

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Nafni 16 ár fyrir morð er max, þannig á íslenskan máta hegningarlaga þá er þetta þungir dómar. 

Kinverska leiðin áttu þeir skilið frá minum bæjardyrum séð. 

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 13.2.2015 kl. 01:38

3 identicon

Ekki þungir í því samhengi að burðardýr geti fengið 6 ára dóm og það talist hæfilega langt ˅

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/05/23/sex_ara_fangelsi_fyrir_smygl_a_e_toflum/

  (IP-tala skráð) 13.2.2015 kl. 15:22

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að mínu mati er þetta ansi nálægt morði og miðað við marga dóma, er ekki hægt að taka undir að þetta séu þungir dómar, nafni.

Kveðja af Suðurnesjunum

Jóhann Elíasson, 13.2.2015 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.