Formaður Stéttarfélags Vesturlands gagnrýnir samninga sem skiluðu fullu húsi.

Fráleit er sú fullyrðing formanns Stéttarfélags Vesturlands að samningar nokkurra verkalýðsfélaga við einstaka atvinnurekendur hafi veikt samningsstöðu verklýðshreyfingarinnar. Erfitt er að ímynda sér að „órofin samstaða“ skili „fullu húsi“, þegar upp verður staðið, eins og hinir gagnrýndu samningar gerðu. Nema þá helst fyrir tilverknað þeirra samninga.

Ef eitthvað veiktist, var það samstaða og styrkur atvinnurekenda. Samtök atvinnulífsins standa frammi fyrir því að í gerðum samningum var gengið að kröfum verkalýðsfélagana.

Undarleg er sú aðferðarfræði formannsins að gagnrýna "skort" á  samstöðu, með því að kljúfa sig svo frá samstöðunni.

Þetta minnir á tilraunir til að sameina margklofna vinstri flokkanna á árum áður, þar sem unnið var aðallega eftir þeirri hugmyndafræði að sameining tækist aðeins með því að kljúfa enn frekar.


mbl.is „Kepptust við að semja út og suður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem formaður StéttVest ræðst gegn VLFA. Það eru mörg ljót dæmi sem þar má telja upp.

Það sem vekur hjá manni spurningu er hvert hlutverk verkalýðsforingja er. Er þeirra hellsta hlutverk að standa að verkföllum? Eða er hlutverk verkalýðsforingja að semja um kaup og kjör fyrir sitt félagsfólk?

Formaður StéttVest er greinilega á því að kjarasamningar skipti litlu máli, verkföllin eru það sem öllu skipta. Kannski tengsl hennar við ákveðinn stjórnmálaflokk spili þar stóra rullu.

Gunnar Heiðarsson, 15.5.2015 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband