Forin hrærð

„Sigmundur Davíð segir konu sína reiðubúna að birta frekari gögn um skattamál þeirra hjóna ef aðrir forystumenn stjórnarflokkanna geri slíkt hið sama".

da05167fda1f0b20e237bdee2c339ade.jpgÞað er bara svona. Er þetta vörn hvítflibbans? Vörn þess sem segist ekkert hafa að fela. Hefur Sigmundur ekki margsagt að öll spilin hafi þegar verið lögð á borðið?

Það hefur þá verið ósatt en  smellpassar við módelið– eðlilegt að hann segi ósatt, meðan aðrir gera það sama.

Síðar kemur væntanlega í  ljós, reyni á þessa yfirlýsingu Sigmundar, að hún á litla tengingu við sannleikann - eins og flest sem frá honum hefur komið.

Þessi gagnvirka vörn Sigmundar er auðvitað himnasending fyrir smáglæpona. Þeir hljóta að taka þetta sér til fyrirmyndar og viðurkenna ekki sín „mistök“, nema því aðeins að öll starfsstétt þeirra geri slíkt hið sama - á einu bretti og málið dautt!


mbl.is Hjónin tilbúin að birta gögnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju einblínirðu á Sigmund Davíð Gunnlaugsson?  Tekurðu virkilega ekki eftir kröfu Lilju Mósesdóttur?  Ertu karlrembusvín, spilltur eða hvort tveggja?  Tökum undir kröfu Lilju:

Nú þegar ljóst er orðið að kjörnir fulltrúar okkar munu sitja eitthvað áfram í sætum sínum, hvet ég þá til að vinna saman að lagabreytingum sem tryggja að þjóðin fái upplýsingar um hina raunverulegu eigendur krafna í slitabú gömlu bankanna. 

Raunverulegur eigandi telst vera einstaklingur ekki eignarhaldsfélag eða annað fyrirtækjaform. Nota verður þetta ákvæði laga um peningaþvætti og setja inn í öll lög sem mögulegt er að hrægammanir noti til að koma sér undan upplýsingagjöfinni. 

 

 

 

Með slíkri löggjöf gætu Íslendingar lagt grunn að því að endurreisa traust í samfélagingu og alþjóðlegt orðspor þjóðarinnar. 

Traust almennings til helstu stofnana samfélagsins er í molum. Það er því mikilvægt að þjóðin viti hverjir hafa hagnast á alltof háu vaxtastigi eftir hrun, mikilli hörku við innheimtu skulda heimila og fyrirtækja, og á stöðuleikaframlagi sem er ekki nema um helmingur þess sem leggja átti á með stöðugleikaskatti. 

Upplýsingar um raunverulega eigendur eignarhaldsfélaga og fyrirtækja tryggja að:
1. allir búsettir á Íslandi greiði sinn skerf til samfélagsins.
2. óháðir aðilar keppi á mörkuðum í stað tengdra aðila sem er brot á samkeppnislögum.
3. nöfn kennitöluflakkara liggi fyrir.
4. fjölmiðlar stjórnist ekki af skuggaeigendum.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.4.2016 kl. 09:20

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er það karlremba og spilling að gagnrýna Sigmund og hans verk? Hvaða helvítis bull er þetta kona?

Hver er munurinn á karlrembu og kvennrembu Elín, ert þú slík?

Þú ferð inná sömu röksemdabraut og Sigmundur, ekki má ræða Sigmund nema ræða hina líka!

Auðvitað eiga allir að fá sömu meðferð sem eru í þessum drullupytti, hvar sem þeir í flokki standa. Ég gef ekki annað í skyn hvorki í þessari færslu eða annarsstaðar.

En Sigmundur er í umræðunni og fréttin sem ég blogga um er um hann. Enginn er duglegri en hann sjálfur að viðhalda sér í kastljósinu með vafasömum, lítt trúverðugum og tvíræðum yfirlýsingum. Maðurinn hefur bara ekki vit til að hætta að gjamma einhverja vitleysu.

Ég styð alla reglusetningu og lögjöf sem tekur á sukki og spillingu. En ég held að það dyljist engum að núverandi ríkisstjórn er ríkisstjórna ólíklegust að vinna að setningu slíkra laga.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.4.2016 kl. 10:07

3 identicon

Það var ríkisstjórn Samfylkingar og VG sem felldi tillögu Lilju um að nöfn einstaklinga sem standa að baki kröfunum í slitabúin yrðu upplýst.  Þau sýndu með verkum sínum að þeim er ekki treystandi.  Þau eru greinilega meðsek.  

Þeir sem samþykktu tillögu Lilju voru: Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason, Birgitta Jónsdóttir, Eygló Harðardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Höskuldur Þórhallsson, Lilja Mósesdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Siv Friðleifsdóttir og Þór Saari.  

Látum þau kjósa aftur og samþykkja tillöguna í þetta sinn.  Við verðum að losa okkur við þessa glæpamenn af þingi, hvar í flokki sem þeir standa.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.4.2016 kl. 10:28

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ekki set ég mig upp á móti algerri hundahreinsun á Alþingi, því fyrr því betra.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.4.2016 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband