Svona viljum við hafa það

Eftir því sem forysta Sjálfstæðisflokksins og bakland hennar tengist fleiri og fleiri aflandsspillingarmálum, þá virðist fylgi Sjálfstæðisflokksins aukast!

Öll þessi mál hafa víst verið útskýrð svo vel af hálfu hlutaðeigandi að frekari umræðu eða efasemda virðist ekki þörf!

Er þetta ekki magnað!

Siðbótarkrafan hefur opinberlega runnið sitt skeið á enda.

Nýtt uppgangstímabil sérhagsmuna er hafið.

Við bara vitum það ekki enn, en fáum tækifæri til að staðfesta það í næstu kosningum.

Nú er krafan skýr. Meiri spilling, meira sukk, meira smjör og meiri feiti á spillingarhjólin.

Forsetinn, blessaður-anginn, sem gat hætt á toppnum vinsæll og virtur, mun á endanum hrökklast frá, hæddur og smáður eftir að renna illa til í eigin feiti.

Þetta er Ísland í dag.


mbl.is Foreldrar Bjarna áttu aflandsfélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst allt í lagi að faðir Bjarna hafi átt aflandsfélag.

Syndir Feðrana kanski ?

Ekki stjórnar Bjani hvað faðir hans gerði.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 5.5.2016 kl. 12:28

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Held að góð verk Bjarna Ben í þágu þjóðar ráði mestu um auknar vinsældir Sjálfstæðisflokksins.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 5.5.2016 kl. 12:48

3 identicon

Nákvæmlega Birgir, þó svo að kallgreyið hafi átt einhvern aur í Aflandsfélugum só watt? Að vera að básúna út þessa vitleysu um þessi Aflandsfélög þar sem gild ástæða er á bak við hvert og eitt félag. Fáránlegt að láta frakvæmdastjóra lífeyrssjóða fara vegna þessara mála ekki síst þar sem þeir eru með öll sín mál á hreinu. Maður bíður eftir að fyrrverandi gjaldkeri  Samfylkingarinnar taki við störfum aftur hjá flokknum

thin (IP-tala skráð) 5.5.2016 kl. 12:48

4 identicon

Sæll Axel Jóhann - sem og aðrir gestir, þínir !

Axel !

Mjög skynsamleg: greining þín, á öfuguggahætti ísl. stjórnmála / sem og útkynjun: á alla vegu.

Birgir !

Rétt að minna þig á: sem aðra, að Engeyjar Vafninga- FALSON slektið, hafa verið óþurftar afætur og óhappalýður, á bökum íslenzks almennings, svo áratugunum skiptir / er ekkert að byrja, á þessum misserunum.   

Heimir !

Í hverju: felast ''góð verk'' Bjarna Benediktssonar, að þínu áliti ?

Óbreytt skattheimta- sem og gjalda okur Jóhönnu og Steingríms J. klíkunnar, lætur þessi FALSON kúskur (Bjarni) kyrr liggja, og bætir heldur í gjalda farganið, heldur en hitt, enda lítill og enginn munur á skepnuskap þeirra Steingríms J. og Bjarna: beggja.

Segðu okkur Heimir !

Ertu: orðinn ellliær / eða, ertu hættur að taka eftir sorp mixi ísl. stjórnmála afætanna, svona almennt ?

Með Falangista kveðjum: þó - af Suðurlandi / fremur þurrum reyndar, til Birgis og Heimis //  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.5.2016 kl. 13:08

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Allir virðast eiga pening í aflandsfélögum.

Það er ekki hægt að kæra það, því það er löglegt.

Svo, ef fólki líkar það ekki, hvern á það þá að kjósa?

Ásgrímur Hartmannsson, 5.5.2016 kl. 13:42

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Satt er það hjá þér Heimir að "góð verk" Bjarna skapa fylgi Sjálfstæðisflokksins.

Þessi 40% flokkur rétt lafir í 26 prósentum undir styrkri stjórn Bjarna.

Þið megið vera stoltir af ykkar manni, þetta gæti sannarlega verið verra!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.5.2016 kl. 19:05

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

thin, ég held að fáir deili þeð þér áhuga þínum á að gjaldkeri Samfylkingarinnar og aðrir slíkir tappar skili sér aftur til starfa.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.5.2016 kl. 19:07

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Engu við þetta að bæta Óskar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.5.2016 kl. 19:07

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hér eins og í öðrum sambærilegum málum er allt sagt hafa verið talið fram á Íslandi og skattar og önnur gjöld greidd!

Til hvers var þá leikurinn gerður?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.5.2016 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.