Kominn heim!

Heddý, konan mín fyrrverandi ţurfti ađ flytja á milli húsa á Skagaströnd. Hana vantađi ađstođ og leitađi til mín. Samband okkar hefur, sem betur fer, alltaf veriđ gott eftir og ţrátt fyrir skilnađinn.

Ţar sem ţetta var rétt fyrir jólin og ţau alveg ađ ganga í garđ, bauđ hún mér ađ vera yfir jólin og áramótin. Sem ég ţáđi međ ţökkum. Inga dóttir okkar og hennar kćrasti  Carsten Timmerman frá Danmörku voru međ okkur. Ţetta var háđtíđleg stund, en ţađ vantađi eitthvađ. Ţađ vantađi fjöriđ, ţađ vantađi  börnin.

Ţetta var í  fyrsta skipti  í langan,  langan tíma sem engin börn voru í okkar jólum. Hálf  tómlegt.  Litli Axel Ţór hennar Ingu er hjá pabba sínum ţessi jól en kemur á annan í jólum og verđur hjá mömmu sinni,  afa og ömmu fram yfir áramót.

Kara Lind hennar Bryndísar er hjá henni og hennar manni, honum Magga í nýju íbúđinni ţeirra í Grafarvoginum.

Hallgrímur og Nicole eru og halda sín jól í Kópavoginum. Ţau eiga von á sínu fyrsta barni í endađan febrúar.

Mér hefur ekki liđiđ betur í langan tíma,  en ţessa daga á Skagaströnd. Ţađ er gott ađ vera „kominn heim“ ţótt tímabundiđ sé. Ţegar mađur, eftir langa fjarveru,  stendur á „Húnverskri grund“ eins og sagt er í útvarpinu okkar hér viđ flóann, ţá skynjar mađur hversu djúpt rćturnar raunverulega liggja.

 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband