Hvað verður í matinn elskan?

hrefnaHvað gera atvinnuhvalfriðunarfrömuðir þegar alfriðun á hvölum hefur endanlega verið þvinguð í gegn? Ætlar Árni Finnsson og kollegar hans erlendir að leggja sjálfa sig niður og fá sér aðra vinnu þegar þetta er í höfn? Ekki er það nú líklegt, líklegra er að þeir snúi sér að „björgun“ næstu nytjategundar. Engu mun skipta, sem fyrr, hvort sú tegund er í „útrýmingarhættu“ eður ei. Þeir munu sem fyrr fá á sveif með sér auðtrúa og ístöðulausar sálir með því einu að spila á tilfinningar þeirra.

En hvað skildi þetta auðtrúa fólk ætla að éta þegar búið verður að friða kýrnar, kindurnar, fiskinn og allt heila klabbið? Jú það ætlar sennilega að fara út í búð og kaupa í matinn eins og það hefur alltaf gert. Það hljóta allir að sjá að það er hreinasti óþarfi og villimennska að deyða dýr sér til matar þegar nægt framboð er af bæði kjöti og fiski í búðunum.

Svo má alltaf fá sér hamborgara eða pylsu út í sjoppu ef annað bregst.

Hamborgari


mbl.is ESB: Hvalveiðar þvælast fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband