Bönnum fótbolta

Í fótbolta sjá allir eftir, spörkum, hráka, munnsöfnuði og nefndu það, þegar dómarinn hefur séð það. 

Að spila fótbolta getur kannski verið kikk og gaman, en að horfa á aðra og það atvinumenn í "íþróttinni" fá kikk og leika sér og það í gegnum sjónvarp er í hæsta máta undarlegt. 

Rétt eins og beinar útsendingar tíðkuðust frá öðru vinnandi fólki vinna sína byggingarvinnu eða annað og fólk horfði slefandi á það heima drekkandi bjór og slafrandi popp og pitsur. 

Sjúkt, bönnum fótbolta.


mbl.is Fjórtán ára réðst á dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Bjórinn bjargaði mér frá íþróttabölinu...

Gulli litli, 26.7.2008 kl. 14:46

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sæll Gulli. 

Þú hefur sem sagt farið úr einu bölinu í annað. Ég viðurkenni að bjór sé umtalsvert betri en fótbolti.

Menn verða ekki þunnir af bjór lengur en einn dag. En fótboltaþynnka varir jafnvel vikum eða mánuðum saman.

Ég hef horft upp á menn sem héldu með sitthvoru liðinu rífast allan mánudaginn og jafnvel fram eftir vikunni um sama leikinn. Lítið var um vinnu, boltinn var aðalatriðið.  Ég myndi reka svona menn.

Þvílíkt líf að eiga ekki glaðan dag ef eitthvert fótboltalið út í heimi tapaði leik!

Þetta er að hafa eitthvað að lifa fyrir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.7.2008 kl. 15:00

3 identicon

ég er með drengnum í flokki og þetta er ýkt svo mikið að það er ekki eðlilegt. hann rétt danglar í hann á leiðinni útaf vellinum eftir að dómarinn hafði gefið honum MJÖG ósanngjarnt rautt spjald.

fróði (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 15:26

4 identicon

greinilega maður með viti hér á ferð

Daði (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 15:30

5 identicon

Þó að þetta sé ýkt í fjölmiðlum þá kemur mér ekkert á óvart að þetta komi úr herbúðum Fylkis :D Ég man að fylkisdrengirnir voru mestu fantarnir í yngri flokkunum þegar ég var að spila.

Danni (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband