Hryðjuverk!

Þeir hafa ástæðu til að kætast félagarnir Brown og Darling, því á Íslandi hefur í dag verið framið hryðjuverk.

Seðlabanki Íslands hefur kastað gereyðingarsprengju út í þjóðfélagið.

Að vísu má færa að því ákveðin rök að því að þetta sé mannúðleg aðgerð, þar sem hún styttir til muna kvalafullt dauðastríð fyrirtækja og almennings.

 


mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Davíð er fílf frá a til ö. Hvað með framtíð Íslendinga ?

Arnar Björnsson (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 10:07

2 Smámynd: Johnny Bravo

Hvað veistu um stýrivexti?

Það þarf bara að byrja þarna, til að ná niður verðbólgunni til að við með verðtryggðlán förum ekki öll á hausinn.

Svo er það spurning um að finna lánsfé eins og staðan er í dag ef maður fær ekki hærri vexti en verðbólgan er þá vill maður ekki spara.

Þegar fé fer að koma hingað inn eftir þessum vöxtum þá fer krónan að styrkjast og þá lækka vörurnar.Það hjálpar öllum.

Varðandi fyrirtæki þá eru það ekki þessir vextir sem gilda heldur vextirnir hjá viðskiptabönkunum.

Ríkið mun örugglega halda fyrirtækjum á floti í gegnum bankana.

Það tók 6 daga síðast hjá viðskiptabönkum að breyta vöxtunum sjáum til hvað þeir verða fljótir núna.

Ef þetta er of mikil hækkun þá mun verðbólgan lækka hratt og krónan styrkjast mikið og þá er leikur einn að lækka þetta aftur.

Johnny Bravo, 28.10.2008 kl. 10:12

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Mér þykir það nokk augljóst að Johnny nokkur Bravo hafi verið heilaþveginn af hægrimönnum. Annaðhvort það eða þá að hann sé frændi Davíðs.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 28.10.2008 kl. 13:10

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Arnar og Ingibjörg, takk fyrir innlitið og undirtektir.

Johnny Bravo, ég geri þetta hér að mínu svari

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.10.2008 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband