Ólýsanlegur viðbjóður.

Þetta er ólýsanlegur hryllingur og það er erfitt að meðtaka að þetta hafi gerst í raun og veru en sé ekki handrit að lélegri hryllingsmynd.  

Það eru svona mál sem fá mann til að leiða hugann að því hvort dauðarefsing  sé ekki réttmæt í einstaka tilfellum. Margfaldur lífstíðardómur tryggir samt að hann mun aldrei aftur fá tækifæri til að endurtaka þennan viðbjóð.

En það setur að manni hroll að hugsa til þess hvaða refsingu Íslenskir dómstólar hefðu líklega talið hæfa þessum manni, í ljósi þeirra dóma sem gengið hafa í nauðgunarmálum.

 
mbl.is Nauðgaði dætrum sínum um árabil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er allof hörð refsing, ætli hann hefði fengið 28 lífstíðardóma fyrir 28 líkamsárasir? Hljómar eins og spilltur dómari.

Siggi (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 19:56

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Siggi það er auðvitað ljóst að hann mun ekki lifa það að taka refsingarnar út og er það megintilgangurinn.

Hvað telur þú hæfilega refsingu Siggi? Klapp á bakið?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.11.2008 kl. 20:02

3 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Þessi takmarkaða frásögn í fréttinni gefur okkur bara smá hugmynd um hryllinginn. En hann gerir mig samt orðlausa.

Marta Gunnarsdóttir, 25.11.2008 kl. 20:04

4 identicon

Þetta er auðvitað alveg svakalegt að heyra og ég geri enga athugasemd við þennan dóm, en ég er þó þerirra skoðunar að dauðarefsings sé ALDREI réttlætanleg. Fyrst við höfum ekki vald til að geta gerfið líf eigum við ekki að taka það heldur

Axel (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 20:10

5 identicon

Þú ert nú meiri vanvitinn, í hvert einasta skipti sem þú étur ertu að "taka líf" , afhverju þarftu "rétt" til þess að drepa einhvern?

Siggi (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 21:04

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Marta og Axel takk fyrir innlitið og innleggið.

Siggi, ef þú ætlar að gagnrýna fólk og uppnefna ættirðu að gera það undir fullu nafni, annað er ekki við hæfi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.11.2008 kl. 21:25

7 identicon

Sæll Siggi.

viltu þá meina að mannslíf sé ekki mikilvægara en líf dýra?

Axel (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 06:28

8 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Helvítis,ógeð er þessi kall,gott að hann er komin þangað sem hann er best geymdur for ever...

Guðný Einarsdóttir, 26.11.2008 kl. 07:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband