Hugrekki, byggt á blekkingu

Það er ekkert ofurhugalegt við þessa sýningu Ástralans, aðeins örlítil kunnátta í rafleiðni og rafsegulfræði. Elding (rafmagn) fer alltaf styðstu og auðveldustu leiðina. Eldingu slær alltaf niður í næsta punkt sem hefur jarðtengingu.

Málmgrindin sem maðurinn er inn í myndar svokallað Faraday-búr. Þau verja það sem inni í þeim er fyrir rafmagni og rafsegulbylgjum. Bílar og flugvélar eru dæmi um góða virkni Faraday- búra, menn sakar ekki þótt eldingu ljósti niður í flugvélar eða bíla. Öryggi búrsins eykst í réttu hlutfalli við aukna rafleiðni málmsins sem búrið er gert úr.

Stöngin sem maðurinn heldur á í síðara atriðinu er tryggilega jarðtengd og því er greiðasta leiðinn fyrir strauminn til jarðar.Góðir og þykkir gúmísólar tryggja svo að maðurinn nær ekki tengingu við jörð og leiðir því ekki rafmagn.


mbl.is Ástralskur stuðbolti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe.. held að þú sért að vanmeta áhættuna í þessu. Auðvitað er hann ekki að leika sér að því að stúta sér reglulega í bakgarðinum hjá sér, það er margt sem gæti farið úrskeiðis.

Jólakveðja, Guðm. Hilberg

Guðm. Hilberg (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 15:46

2 Smámynd: Skaz

Já hann er í raun að hætta mest á það að gera mannleg mistök. Þetta er allt saman nokkuð "öruggt" á pappír en þegar til framkvæmdar kemur þá bætist við mannlegi parturinn. Get alveg sagt það frá eigin reynslu að maður er að fá allt og oft stuð þó svo að maður sé að fara eftir bókinni en það er samt oftast vegna þess að maður gleymdi einhverju. (hef unnið sem rafvirki )

Skaz, 24.12.2008 kl. 16:55

3 Smámynd: Einar Steinsson

Starfsmenn "Deutsches Museum" í München eru með svona sýningu nokkrum sinnum á dag, sú sýning er nokkuð flott og ég mæli með henni. Eins og Axel bendir á snúast svona atriði mest um þekkingu frekar en áhættu og ef menn ganga rétt frá hlutunum í upphafi er áhættuþátturinn lítill. Við getum orðað það þannig að rafmagn hefur lítinn áhuga á að fara gegnum mannslíkamann sem hefur talsvert mikið viðnám á meðan málmur sem hefur lítið viðnám stendur til boða.

Einar Steinsson, 26.12.2008 kl. 00:01

4 identicon

En ef að mannlegi þátturinn klikkar þá erum við að tala um ansi skrautlega grillveislu.

Stebbi (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 13:10

5 identicon

Það sem skiptir máli í þessu er hver straumurinn er hár. Þótt spennan sé 500.000 volt þá hefur það í sjálfu sér engin áhrif svo framarlega að straumurinn sé lágur líka. Spennan gæti verið ein milljón án þess að maðurinn yrði fyrir skaða.

Kalli (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband