Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Kransakökumanía Íslendinga

Í dag var sprengt  í gegn í Bolungarvíkurgöngunum og af því tilefni var auðvitað slegið upp veislu.

Það var vitanlega  boðið upp á kransaköku, hvað annað, því ekki virðist hægt að halda veislu á Íslandi nema þar sé kransakaka í öndvegi.

Þessi ást Íslendinga á kransakökum er stórundarleg af þeirri einu ástæðu að enginn étur þær. Þær standa yfirleitt nær ósnertar í veislulok.

Mig grunar að ekki hafi verið mikil umferð um þessi Óshlíðarkransakökugöng hafi eitthvað annað og ætilegt verið á boðstólnum.


mbl.is Kristján sprengdi í göngunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er gott að hafa háleit markmið...

...en til að þau náist þurfa þau að vera jarðbundin og raunhæf. Framsóknarmenn eru örugglega nær því að koma manni til Tunglsins fyrir kosningar en manni inn í borgarstjórnina, hvað þá tveimur.


mbl.is Vill ná tveimur mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég þarf smá hjálp hér.

Af hverju vilja samkynhneigðir fyrir alla muni troða sér inn í Fíladelfíu ef þeir eru ekki  velkomnir þar?

Hvítasunnuliðið er án vafa stútfullt af fordómum í garð þeirra sem þeir telja ekki sér samboðna. En er það ekki þeirra réttur?  Er ekki Fíladelfía þeirra kirkja og er ekki valdið þeirra hverjum þeir bjóða í sín hús?

Telja samkynhneigðir sig geta svipt Fíladelfíuliðið sínum réttindum til að auka sín eigin. Eru menn þá ekki komnir aðeins út af sporinu?  

Þá eru samkynhneigðir staddir í sama forarpyttinum og sjálfskipuðu Fíladelfíu englarnir og byrjaðir að éta börnin sín.

 
mbl.is Samkynhneigðir kyssast í Fíladelfíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er lag Steingrímur

Sjómannaafslátturinn er hluti af launum sjómanna. Sjómenn fengu þennan skattaafslátt með samkomulagi milli útvegsmanna og ríkisvaldsins 1954. Þá tók ríkið að sér að niðurgreiða launagreiðslur útgerðamanna með þessum hætti,  það er því ríkisins að ganga frá því við LÍÚ að þeir taki þetta á sig aftur. Ef afkoma sjómanna hefur batnað hlýtur afkoma útvegsmanna að hafa batnað að sama skapi, því er nú lag Steingrímur að fleygja þessu aftur inn í LÍÚ, ekki satt?

Eða þorir þú ekki að hjóla í LÍÚ Steingrímur?  Nei því þorir þú sennilega ekki enda er ljóst að þið eruð að renna marflatir á rassgatið með innköllun kvótans, þótt nú sé lag.

En sjómönnum, sem sumir hverjir eru vikum saman fjarri fjölskyldu sinni,  er ætlað að taka þennan styrk til LÍÚ á sig, til viðbótar við þegar verulega skert öryggi þeirra með niðurskurði til Landhelgisgæslunnar.

Það þarf ekki að segja ykkur þingmönnum Steingrímur, hvernig það er að stunda vinnu fjærri fjölskyldunni. Það skynjið þið vel og Því hafið þið úthlutað dreifbýlisþingmönnum allskonar styrki og uppbætur svo þeir geti haft fjölskylduna við höndina meðan þeir eru í vinnunni.  Ætla mætti að nú sé lag Steingrímur að afnema þetta.

Ráðherrar, þingmenn og aðrir opinberir starfsmenn fá dagpeninga á ferðum þótt allur kostnaður sé greiddur. Nú hlýtur að vera lag  Steingrímur, að afnema þetta og aðrar greiðslur sem að mönnum hjá hinu opinbera er gaukað, fyrir það eitt að vera til.

Væri ekki rétt að vera  jafn lag-legur við alla Steingrímur?

  
mbl.is Sjómannastarfið mikið breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engan smáprest á Selfoss.

Ekki hefur friðarins andi lagst yfir Selfyssinga þótt höggið hafi verið á Gunnarshnútinn. 

Nú er vá fyrir dyrum, því síðasta Kirkjuþing samþykkti að sameina Hraungerðisprestakall og Selfossprestakall.

Ekki eru Selfyssingar sáttir við að sóknarprestur Hraungerðisprestakalls verið við sameininguna sjálfkrafa prestur hinna sameinuðu sókna og krefjast af biskupi að prestur safnaðarins verði valin í almennum prestskosningum.

Þetta er auðvitað sjónamið út af fyrir sig en rökin fyrir kröfunni eru hreint alveg dásamleg. Það gengur auðvitað ekki að prestur úr einhverri smásókn labbi sér sisvona inn í stór-Selfosssókn.

Selfyssingar vilja enga smápresta, enda stórhugamenn.

 
mbl.is Vilja kjósa um sóknarprest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óborgnalegur Peter Sellers....

....í óborganlegum atriðum úr Bleika Pardusnum.

 


Afleikur Evrópusambandsins

Ef möppudýrin í ESB hefðu haft fyrir því að reyna að skynja  Íslensku þjóðarsálina og skilja þankagang Íslendinga, hefðu þau séð að þetta innskot væri ekki skynsamlegt og látið kyrrt liggja.

Aðildarlíkur Íslands að ESB hafa fráleitt aukist við þennan afleik.


mbl.is Skora á Alþingi að samþykkja Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bullað út í eitt

Þetta nýja spil mun víst ganga út á bull og heilaspuna.  

Ætli spilið sé byggt á málflutningi stjórnarandstöðunnar á Alþingi undanfarna mánuði?  

Á þeim bænum  hefur verið skortur á flestu öðru en bulli og bölmóð.

 
mbl.is Keppt í bulli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja þar kom að því!

Það er semsagt þannig komið að það þyki fréttnæmt að það fyrirfinnist pör sem ekki eru samkynhneigð.  

Og þá er auðvitað brotin á þeim mannréttindi eins og skylt er gagnvart minnihlutahópum.

 
mbl.is Gagnkynhneigt par berst fyrir réttindum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Punktur og basta

Er ekki virðingu manna bestur sómi sýndur með því að láta jarðneskar leifar og gröf þeirra í friði þótt misvitrir seinnitíma menn í ætt við minnimáttarhugsun  forseta Frakklands vilji umturna öllu í takmörkuðum tilgangi.

Hverju er  Íslensk þjóð bættari eftir að hafa fengið „heim“ bein til að planta í „ÞJÓÐARGRAFREITNUM“  Á Þingvöllum og merkja JÓNASI HALLGRÍMSSYNI þegar allt bendir til að beinin hafi verið af „venjulegum dönskum óbótamanni“?

Er ekki rétt að hver hvíli þar sem  „forsjónin“ valdi honum stað?  Punktur og basta?


mbl.is Deilt um legstað Alberts Camus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband