Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012
Bölvaðir gikkir
29.2.2012 | 23:44
Að brjótast inn til að stela öllu matarkyns en skilja svo eftir kjötsúpu og slátur er ekki aðeins merki lélegan matarsmekk heldur beinlínis bölvaðan gikkshátt!
Skildu eftir slátur og kjötsúpu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Quislingurinn í Köben
26.2.2012 | 16:32
Það væri mér svo sem að meinalausu þótt Passíusálmarnir yrðu teknir af dagskrá RUV. En þá þyrfti útvarpið að setja á dagskránna eitthvað annað efni sem fullnægði sjálfspíningarhvöt þeirra sem hafa lagt það á sig að hlusta á þetta tros ár eftir ár.
Svo þarf auðvitað að gera Villa í Köben að ritskoðunar- og dagskrárstjóra útvarpsins eða bera dagskránna og fréttaflutning undir hann til að tryggja að RUV, brjóti ekki gegn siðferðis- og réttlætiskennd Gyðinga, sem er býsna viðkvæm ef ekki beinlínis brothætt, sé mið tekið af óaðfinnanlegri framkomu þeirra við Palestínumenn. En sú stöðuveiting myndi auðvitað svipta Villa þeirri ánægju að kæra landa sína til rétttrúnaðareftirlitsstofnana gyðinga fyrir gyðingahatur.
Allir eru, af "eftirlitinu í Köben", flokkaðir sem svæsnir gyðingahatarar sem leggja ekki blessun sína athugasemdalaust yfir útþenslu og landráns aðgerðir Ísraelsríkis.
Hvað eru þeir kallaðir sem kært hafa og framselt landa sína, lífs eða liðna, erlendum öflum, vegna eigin eða annarlegra hagsmuna? Quislingurinn í Köben ætti að skammast sín, en af skrifum hans er löngu ljóst að það kann hann ekki.
Honum er ekkert heilagt nema rétttrúnaðurinn og er að eigin sögn gersamlega fordómalaus í annarra garð! Sjá hér, hér, og hér.
Fellir enga dóma gagnvart gyðingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sóknarfæri
25.2.2012 | 23:35
Þessi frétt segir okkur að í þessum löndum og víðar er sóknarfæri fyrir útflutning á íslenskum matvælum tilbúnum á pönnuna.
Nema náttúrulega að allur slagkrafturinn sé settur í að framleiða sænskar kjötbollur og annan erlendan meltumat fyrir innanlandsmarkað.
Skandinavísk matargerð vinsæl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þar fór góður biti...
25.2.2012 | 22:44
Ljóshraðakenning Einsteins...
24.2.2012 | 22:10
...mun falla, í fyllingu tímans, eins og allar aðrar hámarkskenningar.
Allir vita að hámark hraðans, uns annað verður sannað, er þegar hommi serðir sjálfan sig, á hlaupum umhverfis ljósastaur. Aðgerð sem krefst mun meiri hraða en ljóshraða.
Ljóshraðakenning Einsteins heldur líklega gildi sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Af hverju er ræningjanum ekki sleppt?
21.2.2012 | 22:45
Ef notuð er sama hundalógík og m.a. er brúkuð í tilraun einstakra þingmanna að ónýta ákæruna gegn Geir H. Haarde, að ekki gangi að ákæra Geir einan meðan aðrir sleppa, þá ætti þessi seinheppni ræningi líka að sleppa alfarið við refsingu. Því hann sætir einn ákæru, rétt eins og Geir, á meðan sökunautar hans sleppa.
Alþingi þarf að grípa í taumana og leysa pólverjann úr klóm ákæruvaldsins um leið og það veitir Geir lausn, annað væri óréttlæti.
Það segir sig eiginlega sjálft!
Fimm ára fangelsis krafist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í alvöru talað
21.2.2012 | 15:06
Þá hefur þeirri spennuþrungnu óvissu verið eytt.
Steinunn Ólína ætlar ekki á Bessastaði að þessu sinni.
Fólki ætti því að verða sæmilega svefnsamt í nótt.
Steinunn Ólína ekki í framboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rekum Gunnar, rekum hann ekki, rekum hann, rekum hann ekki....!
20.2.2012 | 07:21
Þetta brottrekstrarmál forstjóra Fjármálaeftirlitsins er allt hið undarlegasta. Stjórn FME hefur með yfirlýsingum sínum og hálfkveðnum vísum undanfarna daga gjaldfellt Gunnar Þ. Andersen forstjóra þess og sjálfa sig í leiðinni.
Fyrir helgi var brottrekstur Gunnars yfirvofandi, nánast óafgreitt formsatriði, núna er ekki alveg víst, að hann verði rekinn eða hvort það hafi yfir höfuð staðið til að sögn stjórnar- formanns FME.
Það er ólíklegt, eftir þennan trúnaðarbrest, að þessir aðilar geti í framtíðinni starfað saman með þeim hætti að traust ríki, ekki aðeins milli þeirra, heldur miklu fremur hvort á FME, í heild sinni, ríki það traust sem nauðsynlegt er til að starfsemi þess sé trúverðug.
Því er óhjákvæmilegt, úr því sem komið er, að bæði stjórn og forstjóri FME víki.
Gunnar Þ. Andersen mætir til vinnu í dag þrátt fyrir uppsögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Konur
19.2.2012 | 11:28
Allar konur þessa lands, dætur, mömmur, ömmur, langömmur og langlangömmur - til hamingju með daginn!
Vinir og fjölskylda | Breytt 20.2.2012 kl. 06:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Árni það eru takmörk fyrir öllu, hefur þú ekki enn áttað þig á því?
14.2.2012 | 20:37
Hversu langt ætli ég geti gengið til að níða niður Árna Johnsen áður en honum finnist málfrelsi mitt nokkuð rúmt orðið?
Get ég kallað hann laumuhomma, kvenníðing, svikara, svíðing og öllum hugsanlegum ónefnum til viðbótar við það sem þegar er á hann sannað, einungis í nafni málfrelsis?
Auðvitað veit Árni, jafn vel og ég, að það má ég ekki, og því kalla ég hann ekki þessum ónefnum opinberlega, þótt mér finnist þau fullkomlega viðeigandi í hjarta mínu.
Það ættu bæði hann og Snorri Óskarson að hafa í huga, slíkt gerir maður ekki.
Ofbeldi og valdníðsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |