Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2012

Alger gullmoli

Aníta Hinriksdóttir er frábær íþróttakona, sem þegar hefur orðið sér og þjóð sinni til sóma. Þrátt fyrir ungan aldur eða einmitt vegna hans, er ljóst að Aníta er hreinn gullmoli. 

Aníta er rós sem á eftir að prýða afrekshnappagat þjóðarinnar um ókomin ár, því afrekaskrá hennar er klárlega aðeins nýopnuð.


mbl.is Aníta í 4. sæti á HM 19 ára og yngri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að hugsa þetta mál frekar?

Auðvitað er Ögmundur úti á túni, í þessu „öryggis hneyksli“ á Keflavíkurflugvelli, sem flest öllu sem hann kemur nálægt. Varla hefur einhver reiknað með öðru.

Það undarlegasta í bakgrunni þessa máls er  að hegðan hælisleitenda, hátterni þeirra eða jafnvel afbrot á meðan á úrvinnslu hælisumsókna þeirra stendur, virðist ekki hafa hin minnstu áhrif á hælisumsókn þeirra.

Fyrir öllu meðalgreindu fólki er þessi „flótta tilraun“ hælisumsækjenda staðfesting þess að engin innistæða er fyrir hælisumleitan mannanna og var aldrei.

Það er því aðeins ein lausn á þessu máli, snara umsókn þeirra upp úr skúffunni, stimpla á hana  SYNJAÐ! Með eins stórum stöfum og á blaðið rúmast og senda síðan kappana með fyrstu vél úr landi, þangað sem þeir komu, með skófar á rassgatinu. Nema auðvitað að til standi að neyða upp á þá landvist!


mbl.is „Við fengum gula spjaldið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessir misbrestir...

...og gallar í kerfinu eru svo augljósir  og sláandi að jafnvel kerfisrisaeðlan Björn Bjarnason sér þá og fær ekki orða bundist.

 Þarf þá frekari vitna við að breytinga sé þörf á þessu verklagi, sem nefndur Björn hefur mjög líklega átt sinn þátt í að skapa? 


mbl.is „Eitthvað bogið við kerfið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Án efa fer megnið af þessu fé...

..., 16 milljörðum dollara "þróunaraðstoðar" alþjóðasamfélagsins til Afganistan, í að styrkja framleiðslu og eflingu helstu útflutningsgreinar afgana,  ópíums, sem er þeirra verðmesti útflutningur.

Það er giska broslegt að það skilyrði er sett fyrir þróunaraðstoðinni að spilltustu stjórnvöld veraldar vinni gegn spillingu!

Fátt virðist meiri gróðrarstíga fyrir spillingu en einmitt afskipti NATO, hvar sem það fyrirbæri drepur niður fæti í heiminum, í nafni friðar og mannúðar.

Talibanar höfðu nánast útrýmt ópíumframleiðalunni í Afganistan áður en NATO taldi rétt að skipta þeim út með hervaldi, af ástæðum sem öllum eru gleymdar núna, til að koma öllu á "rétta braut" aftur.  

Nú blómstarar ópíumframleiðslan í Afganistan sem aldrei fyrr. Hvert fer það eitur? Beint í æðar ungmenna NATO ríkjanna sem sáu ofsjónum yfir "röngum stjórnarherrum" í Afganistan.

Öllu, virðist fórnandi til að „eiga“ vinveitta ríkisstjórn í endaþarmi heimsins, jafnvel heill og hamingju ungmenna eigin landa. Í þeim tilgangi virðast bein fjölda dráp á borgurum fjarlægra landa og óbein dráp á eigin borgurum, ekkert tiltöku mál.

Er eitthvað sjúkara en það?


mbl.is Milljarðar í aðstoð við Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn á ísbirni og sel

Ísbjörn er auðþekkjanlegur á sundi, hann flýtur það vel að öll hrygglengjan auk höfuðsins stendur upp úr vatninu ólík selum þar sem höfuðið eitt sést.

Ítalinn góðglaði sagði í hádegisfréttum að hann þekkti ísbirni frá selum, ljóst er að eitthvað skortir á að sú fullyrðing haldi vatni.

Læt fylgja með myndir af ísbjörnum á sundi, menn geta svo borið þær saman við "ísbjarnarmyndir"  Ítalans.

syndandi ísbjörnsyndandi ísbirnirsyndandi ísbjörn2 
mbl.is Hvítabjörn á sundi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er það, ætlar enginn að krefjast þess að skítseyðinu verði bjargað heim?

Þess verður örugglega ekki langt að bíða að einhver ríði á vaðið og síðan verða allar vælur ræstar og þess krafist að þessum „landsins sóma“ verði bjargað heim og honum forðað frá illum aðbúnaði í Brasilískum fangelsum, sem eru auðvitað ekki mikilsmetandi glæpamönnum Íslenskum bjóðandi.

 

Svona kappa hæfir auðvitað ekkert minna en lúxusdvöl á fimmstjörnu ríkishótelinu á Eyrarbakka, svo honum megi líða sem best á meðan hann upphugsar nýjar leiðir til að flytja inn eitur í æðar íslenskra ungmenna.

 
mbl.is Langur brotaferill Sverris Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygamerðir

Reynt var að smygla merði inn í landið á Seyðisfirði fyrir hálfum mánuði eða svo. Sú tilraun endaði eðlilega með aftöku marðarins, lögum samkvæmt.

Flest bendir til þess að tveir lyga merðir, Ítalskrar ættar ásamt tveim ungum séu á faraldsfótum sínum um landið, breiðandi út lygar og gróusögur, hvar sem þeir drepa niður fótum, eins og slíkra mun háttur.

Fróðlegt verður að sjá hvernig lögreglan og tollgæslan tekur á þessum skaðræðis lygamörðum, sem hafa af meinsemi sinni skapað stríðsástand við annars friðsælan Húnaflóann og hvort litið verði, við lausn málsins, til fordæmisins frá Seyðisfirði?


mbl.is Búið að finna Ítalina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi var þetta missýn

Vonandi er um misskilning eða missýn að ræða, þannig að lattelepjandi kaffihúsa bloggarar þurfi ekki að fara enn og aftur af hjörunum yfir felldum ísbirni.


mbl.is Leita að ísbirni á Vatnsnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að tarna?

Trúði því einhver annar en Lilja að henni væri nóg að skipta um nafn og kennitölu á framboði sínu til að gamla eðlið og innrætið þekktist ekki og henni yrði tekið sem nýrri og ferskri vöru?

  


mbl.is Furðar sig á fylgi flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítlega eðlið

Vaxandi stuðningur við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna kemur ekki á óvart. Það streyma inn upplýsingar og hagtölur sem segja frá afgerandi bata í efnahag landsins, minnkandi atvinnuleysi og auknum fjárfestingum.

Þetta eru upplýsingar og tölur sem stjórnarandstaðan, Íhaldið og Framsókn vonuðust til að bærust ekki eyrum og augum landsmanna fyrr en eftir næstu kosningar. Svo þeir, sem nýir stjórnarherrar gætu tilkynnt þær sem sín verk og eignað sér þannig glæsilegan árangur núverandi ríkisstjórnar.

Nákvæmlega eins og Davíð nokkur Oddson gerði þegar hann, eignaði sér persónulega niðurbrot langvarandi  óðaverðbólgu, þegar Viðeyjarstjórnin hans  tók við af ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 30. Apríl 1991.

Stjórn Steingríms skilaði verðbólgu upp á 4 %, rétt nógu tímalega fyrir stjórnarskiptin, til að Davíð tækist að stela heiðrinum af því í augum almennings, sem hann gerði svikalaust.

Íslenska Íhaldið hefur aldrei stundað ærlega og heiðarlega pólitík og mun aldrei gera, ótrúlegt hvað margir láta glepjast af fagurgalanum.


mbl.is Stjórnarflokkarnir bæta örlítið við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband