Eggið ræður hænunni heilt.

Sigmundur Davíð ætti ekki að reyna að ráðleggja sér eldri, reyndari og vitrari mönnum.  Margt fer honum betur. 

Ólafur Ragnar þarf ekki ábendingar eða umboð frá Sigmundi Davíð hvernig hann hagar sínu starfi og skyldum sem best.  Þurfi hann að leita álits einhversstaðar þá gerir hann það ekki í gegnum fjölmiðla.  Þá starfshætti  mætti formaður Framsóknarflokksins að gjarnan tileinka sér .

Sigmundi Davíð væri nær að fara að leiða hugann að þeirri þraut  að upphugsa nýja  slagara og upphrópanir þar sem  Icesave-grýlan  verður brátt úr leik. Honum veitir ekki af að nýta tímann sem best.


mbl.is Forsetinn leiti álits lögmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Fáir hafa sennilega náð því að verða jafn óáhugaverðir og þreytandi á jafn skömmum tíma og Noregsfarinn.

hilmar jónsson, 4.1.2010 kl. 00:57

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sigmundur er álíka spennandi og notaður flugeldur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.1.2010 kl. 01:01

3 Smámynd: Guðmundur Pétursson

þessi frestun hjá þessum auma forseta er þvílíkur sýndarleikur að hálfan væri nóg.   Þetta verður fullkomnað þegar gjörspilltur og heimskur forsetinn stimplar lög ennþá heimskari og spilltari alþingis hins ömurlega, gjörspillta og gjaldþrota bananalýðveldis sem þetta  vesældarlega útsker er, Ísland.  Megi það sökkva í sæ hið fyrsta.

Svo dansa heilalausu fjölmiðlafíflin með í þessum sýndarleik, alveg ótrúlegt.  En þetta er Ísland þ.a. við hverju öðru er að búast. 

Guðmundur Pétursson, 4.1.2010 kl. 04:07

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er þá ekki aldeilis munur Guðmundur að vera eini maðurinn með viti. Til lukku með það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.1.2010 kl. 08:10

5 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Förumenn Framsóknar eru enn að reyna að gera Noregsförina að vitrænu fyrirbrigði. Sigmundur reyndi það síðast í Kryddsíldinni.

Hjálmtýr V Heiðdal, 4.1.2010 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband