„Ég verð að segja það.“

Að Steingrími Hermannssyni látnum er genginn einn merkasti stjórnmálamaður síðustu aldar. Um það verður vart deilt, þótt skoðanir hafi oft verið skiptar um manninn og verk hans eins og gengur.

Steingrímur var einkar laginn að sameina ólík sjónarmið og var öðrum forsætisráðherrum færari að stýra samstarfi ósamstæðra flokka.

Steingrímur var forsætisráðherra í ríkisstjórn Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Alþýðubandalags og seinna með þátttöku Borgaraflokks 1988 til 1991.

Þeirri ríkisstjórn tókst að kveða niður verðbólgudrauginn sem hafið tröllriðið þjóðfélaginu. Það er alveg á tæru þótt eftirmanni hans á forsætisráðherrastóli hafi, óverðskuldað, orðið vel ágengt að eigna sér þann heiður.

Ég sendi fölskyldu Steingríms mínar innilegustu samúðarkveðjur.


mbl.is Steingrímur Hermannsson látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég er farinn að sakna manna eins og Steingríms

Finnur Bárðarson, 1.2.2010 kl. 17:24

2 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Hann verður í það minnsta áhyggjulaus, úr þessu.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 1.2.2010 kl. 22:31

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tek undir med Finni.Madur saknar svona serkra karaktera.Takk fyrir gódann pistil um Steingrím Hermannsson.

Blessud sé minning hans.

Kvedja.

Gudrún Hauksdótttir, 2.2.2010 kl. 10:32

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Tek undir með þér. Flottur karl hann Steingrímur.

Kveðja.

Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 2.2.2010 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband