Sekur, sekari.....

Auðvitað er það satt hjá Jóni Ásgeiri að menn verða að gæta að því hvað þeir segja. En Jón Ásgeir gleymdi að menn verða líka að gæta að því hvað þeir gera.

Það getur vart verið annað er greindarskortur hjá Jóni, haldi hann að með greinarkorni sem þessu, geti hann  á þessum tímapunkti, breytt almenningsálitinu sér í vil.

En ég hygg að Jón hafi, við ritun greinarinnar, haft í huga orð formanns eins stjórnmálaflokksins sem, í vikunni,  setti fram tölusettar leiðbeiningar hvernig almenningi bæri að lesa skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, svo menn færu ekki að ergja sig um of á gjörðum þeirra seku.


mbl.is Biður Steingrím að gæta orða sinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Það sem Bjarni setti fram voru þarfar ábendingar - lesa - hugsa - og tala svo -það sem Jón setur fram er illa dulbúin hótun.

Sekur - sekari - Jón Ásgeir.

Hvernig var þetta allt með 940 milljarðana??

Ólafur Ingi Hrólfsson, 10.4.2010 kl. 14:25

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ekki spyrja mig væni, ég er ekki málsvari eins né neins. Það er víða pottur brotinn, hver á tiltekinn pott á ekki að skipta máli, er það Ólafur?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.4.2010 kl. 14:42

3 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Það fer Jóni Ásgeiri betur að þegja.

Guðmundur St Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 14:45

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það segir þú satt Guðmundur, hann halaði ekki inn prik á þessu, svo mikið er víst.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.4.2010 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.