Hver ætlar að toppa þetta?

Þótt ég hefði talið eðlilegast að Björgvin stigi skrefið til fulls er ljóst að hér er um tímamóta ákvörðun að ræða og af ábyrgð gerð. Nú standa spjótin á öðrum sem hruninu tengjast.

Axlið ykkar ábyrgð þingmenn, hver verður manna mestur og fyrstur til að stíga skrefið til fulls og segja af sér, sem skyldan, þjóðin og samviskan býður? Úps þetta með samviskuna var til of mikils mælst, gleymum henni.

Burt, burt, spillingarkjaftar!

 
mbl.is Björgvin víkur af þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Það verður erfitt fyrir hrunflokksparið að snúa sér út úr þeirri þröngu stöðu sem þau eru komin í, og hún þrengist stöðugt.

hilmar jónsson, 15.4.2010 kl. 17:38

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Kristján, Össur og Jóhanna. Eru nokkuð fleiri af hrunráðherrum eftir?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 15.4.2010 kl. 17:46

3 identicon

Ég tek hatt minn ofan fyrir honum á sama tíma og mér finnst það algerlega lýsandi dæmi um siðferði ALLRA  annara þingmanna að það skuli vera HANN - HANN sem "fékk" ekki einu sinn upplýsingar eða svo mikið sem að mæta á fundi.

Ingibjörg Sólrún á ALDEILIS eftir að svara fyrir það.

MargrétJ (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 17:47

4 identicon

Kúlulánadrottningin og Vafningur mættu taka Björgvin sér til fyrirmyndar.

Bjöggi (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 17:56

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það má segja Hilmar

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.4.2010 kl. 17:57

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú tekur réttan pól í hæðina að venju Heimir

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.4.2010 kl. 17:59

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú hefur mikið til þíns máls MargrétJ

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.4.2010 kl. 18:00

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það skyldi maður ætla Bjöggi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.4.2010 kl. 18:01

9 identicon

Þetta er bara sýndarmennska hjá Björgvin.

Hallur (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 18:03

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Telur þú að brotthvarf hans af þingi og annar komi í hans stað sé sjónhverfing, Hallur?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.4.2010 kl. 18:14

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hefur þú dæmi um að annar hafi gert betur, Hallur?  Eða telur þú ekki þörf á því?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.4.2010 kl. 18:15

12 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Bara flott hjá honum..Ef aðrir byrjuðu bara á þessu væri það til bóta!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.4.2010 kl. 18:18

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála Silla. Ég hefði þó kosið að hann hefði stigið skrefið til fulls.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.4.2010 kl. 18:35

14 Smámynd: Árni Gunnarsson

Að verða fyrstur af þessari ráðvilltu hjörð til að taka skrefið sýnir að það er þó mannræna í drengnum. Mikið óskaplega hljóta margir af þessum görmum að eiga bágt núna þegar þeir standa eins og naktir apar frammi fyrir þeirri ógnandi kröfu að axla ábyrgð á áþreifanlegri hátt en að reigja sig og segja:

"Ég mun sko axla ábyrgð á mínum þætti."

Og telja sig samkvæmt gamalli hefð hafa þar með fengið sitt aflátsbréf.

Nú er það bara ekki lengur samþykkt.

Ja, hver fjandinn!

Árni Gunnarsson, 16.4.2010 kl. 00:00

15 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það ætla flestir að axla ábyrgð með því að nauðga þjóðinni með návist sinni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.4.2010 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband