Það er ekki meiningin að breyta neinu, umræðan undanfarið hefur engu skilað.

Það breytir engu þótt frumvarpið geri ráð fyrir þaki á hámarksstyrkjum, pukrið og leyndin verður áfram sú sama.

Tillögur um að áfram verði leyfð nafnlaus framlög sýna að flokkarnir vilja engu breyta og hafa ekkert lært.

Það er ekkert annað ásættanlegt en stjórnmálaflokkum og frambjóðendum verði óheimilt að veita nafnlausu framlagi viðtöku, sama hversu lítil upphæðin er. 

Ætli ég að gefa einhverjum flokknum eða einstakling 2 milljónir, þá einfaldlega gef ég 200.000, konan sama og restinni dreift á börnin og barnabörnin, allt löglegt og nafnlaust og enginn veit að ég á 2ja milljóna hönk upp í bakið á frambjóðandanum.

Þetta má svo gera við eins marga frambjóðendur og hver kýs og allt nafnlaust auðvitað. Verði ekki allt opið verður auðvelt verk að koma sínu tilliðkunarfé þangað sem það ber sem besta pólitíska ávöxtun.   

Það verður áfram tryggt með nafnleyndinni.


mbl.is Upplýsingaskylda frambjóðenda í forsetakosningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þarna eru þingmenn svoleiðis að vinna fyrir laununum, vel varðar stundir á fundum, eða öllu heldur.

Eggert (IP-tala skráð) 27.4.2010 kl. 22:11

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Almenningur mun ekki láta bjóða sér svona bull lengur. Allt upp á borðið.

Guðmundur St Ragnarsson, 28.4.2010 kl. 00:02

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þingmenn hanga á spillingunni og sukkinu eins og hundar á roði.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.4.2010 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband