Mulningur #36

Endurbirti eldri Mulning sem fjallar um Rússnenska flugféagið Aeroflot.

.

.

   Íslendingur var í viðskiptaferð í Sovétríkjunum og þurfti að fljúga með Аэрофлот (Aeroflot  Sovéska ríkisflugfélagið) á milli borga innanlands.

   Landanum var ekki rótt, því margar ljótar  sögurnar hafði hann heyrt af slæmu viðhaldi á vélum flugfélagsins. En annar valkostur var ekki í boði, svo það varð að láta slag standa.

   Þegar farþegarnir voru komnir um borð var flugvélinni ekið út á brautarendann. Hreyflarnir voru þandir á brautarendanum og flugtak undirbúið. En skyndilega var hætt við flugtak og vélinni ekið aftur upp að flugstöðinni.   

   Vinur okkar hóaði í flugfreyjuna og spurði hvað væri í gangi.  

   „Þegar var verið að reyna hreyflana þá líkaði flugmönnunum ekki hljóðið í þeim svo þeir hættu við flugtak.“ Sagði flugfreyjan og brosti sínu breiðasta.  

   „Er þá verið að snúa við til viðgerðar:“ spurði vinurinn.

 

   „Nei, nei, það á að skipta um flugmenn.“ Svaraði flugfreyjan hin rólegasta.

 
mbl.is Drukknum ferðalöngum hent út á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann var góður þessi. Hef sjálfur verið farþegi í nokkrum Aeroflot vélum af ýmsum stærðum og hver önnur betri. Hefðu mátt vera aðeins hreinni.

V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 10:41

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Aeroflot hefur farið úr því að vera eitt af þeim verstu í Evróðu upp í að vera nú eitt það besta í víðri veröld.

Hverjir borguðu.... jú Kommarnir sem nú kalla sig "Lýðræðissinna" :)

Óskar Guðmundsson, 29.6.2010 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband