Undir teppið sópa kirkjunnar vendir best

Af hverju er kirkjan að streða gegn straumnum og basla með þetta pukur varðandi kynferðisafbrot innan hennar, þvert á alla skynsemi?

Ef barni eða konu er kynferðislega misboðið á einhvern hátt  velkist enginn í vafa, bæði leikum og lærðum, að það sé allt í senn gróft afbrot, glæpur og synd.

En ef kynferðisbrotið er framið innan kirkjunnar fer allt í baklás og kirkjunnar mönnum virðist allt í einu fyrirmunað að greina rétt frá röngu. Hvað veldur?

Af hverju tekur það konu, sem vill greina frá reynslu sinni, heilt ár að fá fund með kirkjunni? Maður hefði haldið að bærist slíkt erindi ættu menn að stökkva til, ákafir í að leysa málið. Ónei ,allt er gert til að tefja málið og drepa því á dreif, takist ekki strax að sópa því undir teppið.

Þetta heitir að hindra framgang réttvísinnar út í þjóðfélaginu, hvað það kallast innan kirkjunnar veit ég ekki.

  


mbl.is Starfsmenn kirkjunnar skimaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Burt með þetta af ríkisspenanum..

hilmar jónsson, 18.8.2010 kl. 11:55

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nokkuð til í þessu, Axel.

Smá önnur athugasemd; ég held að það eigi að segja "bæði leikum og lærðum".

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.8.2010 kl. 12:01

3 identicon

Þarf fólk frekari vitnana við... þetta er ekki bara á íslandi, þetta er viðloðandi ÖLL trúarbrögð.

Ég hef fylgst með þessu árum saman... hryllingurinn er alger... það sorglega er að kindur innan trúarbragða vilja ekki heyra svona, vilja gleyma öllu um svona mál.. heilaþvotturinn er alger..
Og nota bene; Heilaþvotturinn nær líka yfir presta, þeir eru flestir einnig fórnarlömb trúarinnar.

Auðvitað á ríkiskirkjan að fara af spenanum.. .málið er bara að íslenskir stjórnmálamenn ÞORA ekki að taka á þessu mikilvæga réttlætismáli....
Það er eins og með ruglið í USA.. þar þora stjórnmálamenn einfaldlega ekki að taka á trúarbrögðum, þykjast vera trúaðir... vegna þess að í mörgum fylkjum er hreinlega BANNAÐ að vera stjórnmálamaður án þess að trúa á himnadraug

doctore (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 12:03

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála því Hilmar, en ekki held ég að það auki frjálslyndi innan kirkjunnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.8.2010 kl. 12:41

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er rétt hjá þér Gunnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.8.2010 kl. 12:42

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Átrúnaði á eldgamlan texta doctore, sem ekki er í nokkru samræmi við raunveruleikann, hlýtur að fylgja afturhald og forneskja.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.8.2010 kl. 12:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.