Bannað en samt leyft

Það er full ástæða til þess, þar sem við stöndum upp í háls í boðum og bönnum, að velta því fyrir okkur hvort á Íslandi sé allt leyfilegt sem ekki er bannað eða hvort allt sé bannað sem ekki er leyfilegt. 

Áfengisauglýsingar eru bannaðar en samt ekki. Það er nóg að búa til einhverja áfengislausa gervivöru með sama útliti og áfengið og þá geta menn auglýst það eins og þeim sýnist.

Þetta auglýsingabann á áfengi og tóbaki er glöggt dæmi um gersamlega tilgangslausa og handónýta lagasetningu með óljósan tilgang.  

Hvaða skynsemi er í því að leyfa sölu á vöru ef hún er svo skaðleg að ekki megi tala um hana eða sýna?  Ég er þeirrar skoðunar að bann við auglýsingum á löglegum og aðgengilegum vörum sé arfavitlaus og alger þversögn og stílbrot.

Hefur þetta auglýsingabann skilað sér í minni neyslu? Álfheiður Ingadóttir ráðherra svarar þeirri spurningu neitandi, en vill samt ganga harðar fram í auglýsingabanni!  Ekki ónýtt það.


mbl.is Taka þarf harðar á brotum á banni við áfengisauglýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki bara vitleysan í henni í áfengisauglýsingabanninu. Heldur eru þessar tölur sem hún nefnir gersamlega út úr kú. Hún tekur viðmið á áfengisneyslu frá 1980 til 2010. Ég meina 1980 var enginn bjór seldur á íslandi. Þá var gengdarlaus innflutningur á bjór til landsins í gegnum millilandaskipin sem ekki koma inn í neina statistik. Einnig var á sama tíma mjög algengt að menn væru að brugga sjálfir. Þegar bjórinn kemur síðan til sögunnar og sérstaklega síðustu ár þegar áfengi varð hlutfallslega ódýrara en áður þá hættu menn þessu sulli í eigin framleiðslu að mestu og þar með kom öll áfengisneysla inn í tölurnar hjá Álfheiði. Þetta var ekki aukning á áfengisneyslu, heldur sennilega að mestu leiti einfaldlega það að öll áfenigsneysla var nú komin inn í opinberar tölur.

Það að áfengisneysla hefur síðan minnkað nokkuð er sennilega einfaldlega það að verð á áfengi hefur hækkað sem gerir heimaframleiðsluna arðbærari en áður. Þessar tölur og allur hennar boðskapur í tengslum við þær er að mínu mati þess vegna algert bull og ekkert annað og segir meira um vanþekkingu hennar á málaflokknum en áfengisneyslu landans.

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 24.8.2010 kl. 13:31

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta lætur nærri Sigurður.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.8.2010 kl. 14:04

3 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Þetta "áfengisbann" en þó ekki er eitt af þjóðargersemum okkar Íslendinga. Svona andstæður og rökleysa hafa mótað okkur sem þjóð.

Guðmundur St Ragnarsson, 24.8.2010 kl. 14:22

4 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

áfengisauglýsingabann átti þetta auðvitað að vera.

Guðmundur St Ragnarsson, 24.8.2010 kl. 14:22

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 24.8.2010 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.