Hvað eru menn að hugsa?

guilty_puppyÞað er í hæsta máta óeðlilegt að þingflokkur Samfylkingarinnar fundi með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur um hugsanlega ákæru á hendur henni fyrir Landsdómi.

Þessi fundur getur aðeins orðið til þess að ala á tortryggni og ljá málinu enn frekar ímynd spillingar og samtryggingar, nóg er samt.

Hefur ekki verið talað um að brýnt sé að stjórnmálaflokkarnir og Alþingi ávinni sér aftur traust almennings, ef þetta er leikur í því tafli, þá er hann afleitur.

Eftir fundinn verður skítalykt af aðkomu Samfylkingarinnar að málinu hvernig sem hún verður.

  


mbl.is Ingibjörg Sólrún ræðir stöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Mikið er ég sammála þér...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 15.9.2010 kl. 13:20

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er afskaplega barnalegt, ég á ekki von á að Björgvin G. Sigurðsson taki þátt í þessu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2010 kl. 13:27

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Allt málið er orðið að pólitískum skrípaleik og Alþingi til stórskammar.  Ekki var á bætandi.

Axel Jóhann Axelsson, 15.9.2010 kl. 13:44

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er ekki ofsögum sagt nafni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2010 kl. 13:47

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

verið'i viss - þau komast upp með þetta

Jón Snæbjörnsson, 15.9.2010 kl. 15:02

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er ekki jafn viss Jón, frá mínum bæjardyrum séð.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2010 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband