Misskilja þingmenn hlutverk sitt?

Mörður Árnason þingmaður segist ekki hafa komist að niðurstöðu um sekt allra þeirra ráðherra, sem lagt er til að mál verði höfðað gegn fyrir Landsdómi.  Í þessari skoðun Marðar Árnasonar liggur sennilega sá misskilningur og vandi sem velkist fyrir Alþingi þessa dagana.

Það er ekki hlutverk Alþingis að skera úr um sekt eða sakleysi fjór- menningana, það er hlutverk Landsdóms. Hlutverk þingmanna er einungis að taka ákvörðun um að kæra  fjórmenningana  fyrir Landsdómi eða ekki.  

Það er þeirra eina hlutverk,  Landsdómur sér um rest.

   


mbl.is Alvarleg vanræksla og stórkostlegt gáleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skarplega athugað.

Það er samt orðið svo mikið leiðindar fár og tortryggni yfir þessari málsókn á alþingi að ég er farinn að telja að sumir treysti ekki íslensku dómsmálakerfi, og efist um að það sé óhátt stjórnvöldum.  Enn skondið að það skuli gerast siss svona í augum sumra!

Þá dettur manni í hug að þeir sem núna eru ósáttir væru sáttari ef erlent dómskerfi tæki íslenska þingmenn fyrir, með íslensk lög að grundvelli.

Jonsi (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 23:36

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Öll umræðan er farin að snúast um aukaatriði og bull og synd þegar menn sjá sekt og sakleysi eftir pólitík, hvort heldur menn vilja saksækja eða sýkna.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.9.2010 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband