Sá yðar sem syndlaus er..

Mikið vildi ég frekar að þessi fyrrverandi vændiskona kenndi barnabörnunum mínum í skóla en kennarar með sömu viðhorf og þeir fordómafullu foreldrar sem hafna kennslu kennarans sökum fortíðar hennar.


mbl.is Fyrrum vændiskonur fái ekki að kenna börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ég hefði einmitt haldið það að þessi væri tekið fagnandi, að vændiskonur færu af götunni og skiptu um atvinnu.

En það er greinilegt að þeim finnst best að þær haldi sig bara á götuhornum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 30.9.2010 kl. 00:35

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Segðu!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.9.2010 kl. 00:41

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef ég ætti að velja milli fyrrverandi eða núverandi prests, svo ekki sé talað um kaþólskan prest og fyrrverandi eða núverandi vændiskonu, þá myndi ég ekki eiga í vandræðum með að velja hið síðara í ljósi sögunnar.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.9.2010 kl. 01:39

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála hér

Jón Snæbjörnsson, 30.9.2010 kl. 11:10

5 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Hvað með vændiskaupendur? þeir geta e.t.v. kennt í þessum skólum, gætu jafnvel verið feður þessara viðkvæmu barna!

Kjartan Sigurgeirsson, 30.9.2010 kl. 11:17

6 Smámynd: Sævar Einarsson

Hann er ekki skarpasti hnífurinn í skúffuni þessi Michael Bloomberg.

Sævar Einarsson, 30.9.2010 kl. 11:33

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitin og innleggin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.9.2010 kl. 12:44

8 identicon

Vændiskonur og fólk vs prestar/trúboðar... Vændisfólkið er miklu betra og traustara en sölumenn dauðans

doctore (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 14:25

9 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Axel, þú ert óttalaus :) Ætli Kjartan hafi ekki hitt á réttu tilgátuna hvað varðar þetta sérstaka mál. Pabbarnir vilja ekki mæta á foreldrafund og hitta þar fyrir gömlu "þjónustuna" sína :)

Ég þekki ekki mikið til vændiskvenna, en hér í den bjó ég um tíma í nágrenni við Istedgaden í Köben á meðan minn heittelskaði var þar í námi og skipti við sama bakarí og hinar vinnandi konur. Þær vildu alltaf víkja fyrir mér í biðröðinni í bakaríinu en ég var jafnstaðföst í því að við færum eftir biðraðarreglunum.

Þetta olli því svo að hvenær sem ég átti leið um götuna brostu þær til mín eða heilsuðu mér. Eiginmaðurinn fór svo að taka eftir þessu og spurði mig "hvernig þekkirðu þær?"

Hann viðurkenndi útskýringuna - en allir hinir hafa eflaust haldið að ég væri "fyrrverandi"...

Kolbrún Hilmars, 30.9.2010 kl. 18:57

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það getur meira en vel verið Kolbrún að það sé tilfellið. Það er sjálfsagt  skoðun þeirra karla sem þetta stunda að þeir geti keypt sér þessa þjónustu en skilið syndina og skömmina eftir þegar þeir fara heim.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.9.2010 kl. 21:13

11 Smámynd: Sigurjón

Sæll Axel og aðrir hér.

Ég er á ykkar línu með að þetta eru fordómar og vitleysa.  Hvers vegna ættu fyrrum vændiskonur að vera verri kennarar en aðrir?  Þetta finnst mér ekki vera rós í hnappagatið hjá téðum Blómabergi...

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 30.9.2010 kl. 23:00

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það Sigurjón

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.9.2010 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband