Rekin úr nefndum?

Hefur það ekki enn borist upp á ritstjórn Moggans að það voru Atli og Lilja sem sögðu sig úr þingflokki VG og þar með sjálfkrafa úr nefndum á vegum þingflokksins? Atli og Lilja sögðu það sjálf á blaðamannafundinum, var Mogginn ekki með blaðamann þar?

Núna eru Atli og Lilja orðin íhaldinu gagnslaus til niðurrifs innan VG, því munu ekki líða margir dagar þar til þau verða tekin niður af átrúnaðar- og dýrkunaraltari Moggans og verða aftur á síðum blaðsins gömlu, þreyttu og einskisnýtnu kommarnir sem íhaldið telur ekki hlandi á eyðandi.

Þá er hætt við að Lilju og Atla verði kalt,  ein úti í horni, áhrifalaus og vonsvikin eftir að hafa pissað í skóinn sinn. Þó það hafi yljað um stundarsakir þá kólnar hlandið hratt þegar þau geta ekki  lengur baðað sig í skjalli og falsi íhaldsins.


mbl.is Rekin úr nefndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 22.3.2011 kl. 12:58

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ljótt að heyra Axel

Jón Snæbjörnsson, 22.3.2011 kl. 13:23

3 identicon

Þau fá fjölmiðlaathygli í hálfan mánuð í mesta lagi, svo er það búið.

Þá taka fráhvarfseinkennin við.. (hjá Lilju alla vega) 

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 22.3.2011 kl. 17:42

4 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Ég held að það komi eingöngu léttir og vellíðan að losna úr þessari ormagryfju.

Bergljót Gunnarsdóttir, 22.3.2011 kl. 20:41

5 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Athyglissýki er orðin svo almenn hjá þingmönnum að það liggur við að vera hægilegt, þó manni sé ekki hlátur í hug. Það eru örfáir þingmenn þarna sem virðast vera að vinna vinnuna sína, og þeir krefjast engrar athygli. Það er svo undarlegt við athyglissýki að henni fylgir alloft athyglisbrestur, þannig að fólk veður bara áfram, heimtandi athygli en hlustar ekki á varnaðarorð. Því fer oft sem fer.

Ég er ekki að bera athyglissýkina upp á Atla Gíslason, en get ekki gert að því að Lilja virkar nú ansi oft eins og hún sé haldin henni.

Bergljót Gunnarsdóttir, 22.3.2011 kl. 20:51

6 identicon

Hvaða þingmenn eru oftast í fjölmiðlum ? Ekki endilega þeir sem hafa mest að segja og gera

Hvaða þingm eru sjaldnast í fjölmiðlum ? Ekki endilega þeir sem hafa minnst að gera eða segja. 

Það eru bara sumir þingmenn athyglsissjúkir og Lilja er einn þeirra. 

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 22.3.2011 kl. 22:31

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sumir lifa fyrir að sjá sjálfan sig í sjónvarpi eða nöfnin sín á prenti. Þeir sömu lesa yfirleitt blöðin á morgnanna til að vita hvaða skoðun sé lýðnum þóknanlegust  þann daginn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.3.2011 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband