Lýðræðislegar kosningar, á þetta að vera brandari?

Það segir í þessari frétt að fyrstu lýðræðislegu sveitarstjórnarkosningarnar í Sádi-Arabíu hafi farið fram 2005. Það er í hæsta máta vafasamt, svo ekki sé dýpra í árina tekið, jafnvel fyndið, að human%20rights%20lebanonkalla kosningar lýðræðislegar, þar sem konur hafa hvorki kjörgengi eða kosningarétt.

Bandaríkjamenn hafa ekki hikað að fara í stríð, útblásnir og þrútnir af lýðræðisást, til að setja af harðstjóra í þessum heimshluta til að koma á lýðræði og mann- réttindum, að eigin sögn.

En þegar kemur að mannréttindum og lýðræði í Sádi-Arabíu, eða öllu heldur algerum skorti á þessu tvennu, setja Bandaríkin kíkinn fyrir blinda augað, svo lengi sem það þjónar þeirra hagsmunum.  


mbl.is Konur fá ekki að bjóða sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hefur alltaf verið svoleiðis.  Ef harðstjórar þjóna hagsmunum USA þá eru þeir ekki að skipta sér of mikið af þó margt megi betur fara í þeirra löndum.  Og já, varla hægt að tala um mikið lýðræði þarna.

Skúli (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 19:09

2 identicon

Harðstjórnin í Sádí Arabíu var nýlega álitinn sú versta í Mið-Austurlöndum af viðmælendum FOX (!). Og samkeppnin í óþverahætti er mikil á þessum slóðum. Kom skýrt fram að stjórnir Túnis og Egyptalands hefðu verið hrikalegar hvað mennréttindi snerti, en Sádar hefðu tekið framúr. Íran þótti eins og kvíabryggja við hliðiná þessu risa fangelsi.

Og USA og við á Vesturlöndum höldum áfram að styðja þessa glæpona, senda þeim vopn og þjálfa í óþverahætti.

Magni (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband