Nú er þetta ekki lengur fyndið!

gaddafi2crop-420x0Algerlega ný aðferðarfræði  virðist hafa  verið tekin upp í átökunum í Líbýu, sem ekki hefur verið reynd í átökum og stríðum hingað til, nú reyna þeir að drepa fólk og rúmlega það,  Gaddafi  sjálfan.

Tími kossa og faðmlaga stríðandi fylkinga er liðin, heimur versnandi fer.

Það er von að þetta komi flatt upp á Gaddafi og hans menn sem hafa auðvitað forðast það eins og heitan eldinn að verða nokkrum að bana í þessum átökum.

   


mbl.is Árás á höfuðstöðvar Gaddafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Er ekki alveg eins gott að sprengja hann í loft upp og stoppa þetta strið strax?

Óskar Arnórsson, 25.4.2011 kl. 08:39

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála því Óskar, en hann sjálfur og hans slekti allt virðist hafa eitthvað við það að athuga.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.4.2011 kl. 08:53

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

...já, enn Gaddafi finnst sjálfum í lagi að sprengja upp fólk svo mér finnst endilega að hann ætti að prófa það sjálfur...

Óskar Arnórsson, 25.4.2011 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband