Osama er dauður, ekki látinn, gott fólk!

Fjölmiðlar á Íslandi hafa  í sí auknum mæli átt í mesta basli að nota viðeigandi orð í fréttum þegar fólk er ýmist myrt, drepið eða tekið af lífi - eða það deyr og fellur frá.

Nú keyrir um þverbak, einhver mesta mannskeppna síðari ára, fjöldamorðinginn, svíðingurinn og ógeðið hann  Osama bin Laden  hefur  loks verið eltur uppi, hann drepinn og sendur til síns heima.   

Í stað þess að nota orðið „drepinn“  eins og gert er gert þegar um er að ræða skepnur   þá tipla fjölmiðlar á tánum eins og um væri að ræða náin vin, ættingja, landsföður  eða afa gamla og leggja sig fram um að segja að þessi sérstaki „mannvinur“ sé látinn, -hann sé fallinn frá!

Ja, hérna, hér.

Frétt á Vísi.is,  og önnur, frétt á Mbl.is og önnur. 
mbl.is Osama bin Laden allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Hefur einhvern tímann verið sannað á manninn að hann sé fjöldamorðingi, svíðingur og ógeð? Hafa verið réttað yfir honum?

Og er eðlilegt að fólk sé myrt rétt sísvona (og meira að segja kona, óbreyttur borgari sem notuð var sem "skjöldur" ef eitthvað er að marka fréttina) án dóms og laga?

Já, það virðist vera skoðun þín og fjölda annarra sem fjalla um þetta.

Það er USA og það fólk sem styður aðgerðir þeirra sem eru hinir raunverulegu fjöldamorðingjar, svíðingar og ógeð.

Torfi Kristján Stefánsson, 2.5.2011 kl. 10:03

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ekki taka mín orð fyrir "afrekum" Osama Torfi, þessi "gæðingur" hefur sjálfur lýst morðum og hryðjuverkum á hendur sér og hælt sér af. Þú hlýtur að taka hann trúanlegan, vænti ég. 

Ég efa ekki Torfi, að Bandaríkjamenn hefðu frekar kosið að ná SVÍNINU lifandi. En hafir þú ekki lesið fréttina, þá kom til skotbardaga þannig að ekki var af hálfu Osama boðið upp á þann möguleika.

Ógeðið hafði í það minnsta þann möguleika að bjarga lífinu, með því að gefast upp, það tækifæri gaf hann ekki sínum fórnarlömbum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.5.2011 kl. 10:23

3 identicon

Amen! He's dead and burried.... Torfi með sitt kjaftæði! Hefur ekki hugmynd hvað hann er að tala um...

 Osama Bin Laden hefur talað um árásir sínar og ást sína á að drepa íbúa vesturlandanna Torfi, leggðu niður samsæriskenningarnar og leitaðu alvöru upplýsinga..

CrazyGuy (IP-tala skráð) 2.5.2011 kl. 11:43

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Einmitt CrazyGuy!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.5.2011 kl. 12:21

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ég veit samt ekki hvort ég eigi að trúa þessu eða ekki.

Ekki í fyrsta sinn sem þeir segja hann dauðann, auk þess sem sagan er svolítið skrítin.

Svo fyrir mitt leyti, skal ég fyllilega trúa þessu þegar það er búið að taka afskræmt og uppstoppað lík hans og hengja það utan á hvíta húsið.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 2.5.2011 kl. 12:34

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hræinu var sökkt í sæ, að sögn Kanana, því enginn vildi taka við því!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.5.2011 kl. 12:40

7 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Já, og ein herdeild fór inn í bækistöðvar og þjálfunarbúðir þeirra. Og allir áttu, að þeirra sögn, að hafa flúið. Og bara bin Laden dó...

Finnst þessi saga eitthvað furðuleg. :)

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 2.5.2011 kl. 13:12

8 identicon

Bækistöð og þjálfunarbúðir? Orfáar hræður þarna, enda umferð til og frá greninu í lágmarki. Og herdeild, öhömm, er ansi mannmörg (3000-5000 manns), - þetta var bara "squad" eða jafnvel "team" sem fór inn, - líklega "squad" með restina af "platoon" innan seilingar.

Bin laden dó, 2 kallar og ein kona. Hafa sjálfsagt ekki haft séns í sérsveitarmenn með nætursjón og allskonar græjur, og brynvarðir upp fyrir haus.

Þetta er svo virkilega í fyrsta skipti sem opinber yfirvöld (forseti, utanríkisráðherra o.fl) staðhæfa að hann sé steindauður og hananú.

Verst með konugreyið sem féll, hún var jú notuð sem lifandi skjöldur. Sérsveitarmenn eru ekkert að hika við slíkt, nema um mikilvægan gísl sé að ræða. Þeir hafa sjálfsagt skotið manninn í gegnum hana (byssukúla úr sæmilegu vopni fer auðveldlega í gegnum nokkra skrokka)

Jón Logi (IP-tala skráð) 2.5.2011 kl. 15:56

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Samkvæmt nýjustu fréttum var það Ósóminn sjálfur sem beitti konu sinni fyrir sig sem skyldi. Hetjan!

Konan er væntanlega í paradís núna fyrir sitt framlag í þágu Islam.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.5.2011 kl. 20:02

10 identicon

Talandi um fjöldamorðingja og virðingu fyrir þeim; Vissuð þið að hornsteinn íslands og geimgaldrakarlsstofnun ríkisins gengur einmitt út á að dýrka fjöldamorðingja, fjöldamorðingja sem var miklu verri en Binni Lati.

Svona er nú hræsnin.. fólk vill dýkar svona EF það telur sig fá eitthvað fyrir

Peace

doctore (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband