Tvískinnungur Péturs Blöndal

Pétur Blöndal alþingismaður hugsar allt út frá krónum og aurum, metur bragð og lykt eftir verðinu.

Hann hefur ekki komið í Hörpuna og langar það ekki,  til þess segir hann húsið vera allt of dýrt. Pétur hefur nokkuð til síns máls hvað kostnaðinn varðar, ekki vafi á því.

Ef Pétur getur ekki hugsað sér að koma í Hörpuna vegna kostnaðarins, hvernig getur hann þá verið í Sjálfstæðisflokknum, flokki sem hefur kostað þjóðina ófáar Hörpurnar?


mbl.is Hefðum átt að breyta holunni í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyþór Örn Óskarsson

Auðvitað var húsi dýrt og umdeilt - ég er hinsvegar hálf feginn að verkið var klárað, þar með er möguleiki á að fari að koma inn tekjur á móti þessum gífulega kostnaði og menn þurfa líka að hafa í huga að fleira er verðmæti en peningar...........

Eyþór Örn Óskarsson, 15.5.2011 kl. 15:38

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið Eyþór.

Það var auðvitað vonlaust að ætla að láta húsið standa þarna hálfbyggt árum saman.

En ég er ekki bjartsýnn á að rekstur hússins standi undir sér. En sjáum til, það verður nægur tími til að rífast um það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.5.2011 kl. 16:05

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Axel.  Hefur þessi Ríkisstjórn sem nú er við völd verið án kostnaðar? Kvað heldur þú að hún hafi kostað okkur margar Hörpur? Hver heldur að þú að borgi Hörpuna?

Vilhjálmur Stefánsson, 15.5.2011 kl. 16:54

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þjóðin borgar Hörpuna Vilhjálmur, hefur einhver haldið öðru fram?

Núverandi ríkisstjórn hefur vissulega þurft að leggja á þjóðina álögur og gjöld, en hvaðan eiga þær álögur uppruna sinn?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.5.2011 kl. 17:04

5 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Uppruni eins rugls er aldrei réttlætanlegur til þess að halda áfram sóun og rugli.

Hvað ætla menn að gera við Borgarleikhúsið og Háskólabíó nú þegar Sinfónían er flutt?

Hvort tveggja fær að grotna niður í rólegheitunum, ásamt hinum byggingunum sem notaðar hafa verið áratugum saman til hljómlistar og leiklistarflutnings. Ástæðan er einföld listafólk og ráðamenn munu halda því á lofti að það þurfi að nýta þetta nýja hús, vegna rekstrarkostnaðar.

Sindri Karl Sigurðsson, 15.5.2011 kl. 18:37

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Dýrasta hús í Reykjavík er að öllum líkindum sjálft Alþingishúsið. Miðað við kostnaðarverð þess sem hlutfall af þjóðartekjum fyrir 130 árum og uppreiknað til dagsins í dag er það væntanlega langdýrasta húsbygging landsins. Af hverju skyldi pétur Blöndal leyfa sér þann lúxús að ganga inn í það?

Harpa er sérhannað hús með tilliti til hljómburðar en ekki sem fangelsi. Bauhaus húsið við Vesturlandsveg móts við Krepputorg er mun heppilegra sem tukthús, meira að segja girðing tilbúin utan við það að hluta. Pétur Blöndal er popularisti sem vill tala rétt eins og skríllinn vill heyra.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 15.5.2011 kl. 22:30

7 identicon

Vá hvað bloggarar eru að taka hann bókstaflega.  Já og fréttamenn...

 Hann segir þetta í hálfkæringi.  Að það hefði frekar borgað sig að hafa fangelsi heldur en þetta helv.  prjál...

Ekki er maður hrifinn af hugmyndum hans Péturs Það er nokk ljós.
En ekki meigum við gleyma því hvaða lýður byrjaði á þessu prjáli...

Jón Ingi (IP-tala skráð) 16.5.2011 kl. 01:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband