Þeir eru klikk, þessir Kanar

Bill Warren, könnuður og kafari er þjóðhollur Bandaríkjamaður með afbrigðum og því treystir hann hvorki forseta sínum eða ríkisstjórn. 

Hann tekur því, eðlilega, ekki  gildar yfirlýsingar Obama forseta að Bin Laden hafi verið veginn og að líki hans hafi verið varpað í hafið, því „sannanir“ skorti.

Bill karlinn ætlar því að hefja leit að líki Bin Ladens í Arabahafi, líki sem hann trúir að sé þar alls ekki!

Leitarsvæðið er á stærð við alla fiskveiðilögsögu  Íslands að landinu meðtöldu. Það eitt segir allt sem segja þarf um líkurnar á því að hræið af Bin Laden  finnist.

Ef Bill finnur ekki hræið, sem næsta víst verður að telja, hvað ætli það verði sagt sanna?


mbl.is Leitar að líki bin Ladens
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ooo bara leyfa honum að leita ef hann langar, bíttar :)

Ásdís Sigurðardóttir, 13.6.2011 kl. 11:28

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sá á fund sem finnur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.6.2011 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband