Uppskriftarbók að einelti

1-skinny-girl_25105818

Það er að mínu mati beinlínis glæpsamlegt að reyna að berja því inn í höfuðið á barnungum stúlkum að aðeins eitt útlit sé hin eina rétta og leiði til frægðar og frama og því minna hold sem þær skarti, því betra.

 Allt annað er sagt glatað og smánarlegt.

Með svona bók er börnum beinlínis selt veiðileyfi á önnur börn, sem af einhverjum ástæðum hafa ekki þetta eina rétta útlit eða möguleika á að öðlast það.

Það þyrfti að kíkja undir húddið á höfundum svona barnabókmennta.

 


mbl.is Megrunarbók fyrir 6-12 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann hefur pottþétt skrifað bókina til að stuðla að einelti. Ekki líkurnar að hann sé að reyna berjast gegn einum mesta faraldri í vesturlöndunum, offfitu og þeim vandamálum sem henni fylgja.

Björn (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 12:02

2 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Björn:

Hefur þú einhverja trú á því að þessi bók eigi eftir að hjálpa börnum að megra sig?
Versla þau inn matinn? Stjórna þau mataræði sínu? Nei, það gera foreldrarnir hinsvegar.

Oft rekst ég á fréttir (þ.á.m. frá Íslandi) þar sem foreldrar eru í öngum sínum yfir vaxtarlagi barns síns eða barna. Skilja ekki afhverju í ósköpunum elsku börnin séu svona feit (og oft eru foreldrarnir engu síðri). Svo er biðlað til stofnana um að hjálpa, því þau bara geta ekki fengið elsku börnin til þess að hætta að éta.

Ef fólk vill að börnin sín megrist, þá á fólk að hætta að kaupa inn og gefa börnum sínum helvítis rusl að borða, og senda þau út að leika í stað þess að hanga inni og horfa á sjónvarpið. Lausnin felst ekki í því að kaupa handa þeim bók um megrunarráð fyrir 6-12 ára börn, því hvað eiga þau að gera? Þau hafa enga stjórn á þessu, en það gera foreldrarnir.

Einstaklega falleg kápan á bókinni, finnst þér ekki? Sem sportar of þungri stúlku, sem kemst ekki í fína kvenlega kjólinn sinn (sem annaðhvort var ekki til í hennar stærð eða af einhverju ástæðum var ekki keyptur í hennar stærð).

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 19.8.2011 kl. 12:47

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Auðvitað á að beina áróðrinum að fullorðna fólkinu, það er sorglegt að sjá hvað börnum er gefið að borða, mörg hreinlega alin upp á skyndibitastöðum, og niðurstaðan, skelfilega feit börn sem vera heilsulaus á fullorðins árum og enginn gerir neitt, ef ég þyrði mundi ég hundskamma foreldra í opinberu bloggi, en það yrði líklegast flokkað undir einelti

Ásdís Sigurðardóttir, 19.8.2011 kl. 13:19

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála þér Axel

Jón Snæbjörnsson, 19.8.2011 kl. 13:34

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ásdís:
Þetta er líka mjög óvinsæl skoðun. Enda þykir fólki nú til dags ekkert eðlilegra en að sjá þessa foreldra sem einhver fórnarlömb, og skyndibita, gosdrykkjum og sælgæti er gert að taka á sig sökina, en ekki ofeldi.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 19.8.2011 kl. 15:27

6 Smámynd: Ellý

Hjartanlega sammála. Einnig, ef þessi bók var skrifuð til að berjast gegn offitu, af hverju er henni einungis beint að stúlkum?

Ellý, 19.8.2011 kl. 16:11

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið og ykkar ágætu innlegg.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.8.2011 kl. 20:41

8 identicon

Við skulum ekki gleyma því að drengir eru líka í auknum mæli að lenda í sama og stúlkur...

DoctorE (IP-tala skráð) 20.8.2011 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband