Guðnagrín

Það er alltaf gaman að Guðna Ágústsyni hann er grínisti góður og er því sjaldan, sem aðrir slíkir, tekinn alvarlega og vart ástæða til.

Guðni heggur í þessari grein að Bryndísi Gunnlaugsdóttur bæjarfulltrúa í Grindavík og segir að hún ætli að hanga á bæjarstjórnarlaunum sínum þrátt fyrir úrsögn úr Framsóknarflokknum og afsögn sem varaþingmaður flokksins í  Suðurkjördæmi. Guðni er með öðrum orðum að senda henni þau skilaboð að henni beri, fyrir liðhlaupið, að hverfa úr bæjarstjórninni.

Þessi orð Guðna, ef þau eru ekki grín eins og öll greinin,  verða vart skilin á annan veg en smalastrákurinn Ásmundur Einar Daðason liðhlaupi úr VG og núverandi þingmaður Framsóknar, hangi líka óverðskuldað á sínum launum.

Þar sem Guðni er samkvæmur sjálfum sér, jafnt í gríni sem alvöru, verða orð hans vart skilin á annan veg en að hann telji að  Ásmundur eigi að búa sig nesti og nýjum skóm, kveðja Alþingi og koma sér heim í sína af-Dali, hið snarasta.


mbl.is Rætnar árásir aðildarsinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

EInmitt, en þú veist nú að þeir hafa aldrei sömu skoðun á því hvort hlutirnir snúa að þeim eða öðrum.  Gott dæmi um hræsni og siðleysi er Þórunn Sveinbjarnar, geri ráð fyrir að þú hafir heyrt í henni í Kastljósi.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.9.2011 kl. 12:21

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Aldrei hefur álit mitt á Þórunni Sveinbjarnar risið hátt og ekki jókst það eftir Kastljósþáttinn. Sveiattann!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2011 kl. 12:37

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Ég held að það væri þá einnig holt að skoða hvernig það hentaði Guðna að hætta á þessu andartaki út frá eftirlaunamöguleikum hans.

Það er mjög margt sem bendir til þess að Guðni hafi vitað fyrirfram um þær hremmingar þjóðin hafði nýlent í þegar hann hætti.

Opinberlega voru hann og Davíð hinir mestu mátar og það meðan mestu árásirnar beindust að Davíð í stóli bankastjórans

Kristbjörn Árnason, 10.9.2011 kl. 12:53

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Tek undir sveiattann 

Ásdís Sigurðardóttir, 10.9.2011 kl. 13:09

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það hefur, Kristbjörn, aldrei verið gefin fullnægjandi skýring á mjög svo óvæntu brotthvarfi Guðna úr stjórnmálum. En kannski er þar ekkert til að útskýra.

Kannski var brotthvarfið bara grín hjá Guðna. Svo hlægjum við öll þegar einhver fattar brandarann í fyllingu tímans.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2011 kl. 13:14

6 Smámynd: hilmar  jónsson

Seint mun mér finnast Guðni fyndinn, en hlægilegur er hann vissulega..

hilmar jónsson, 10.9.2011 kl. 13:50

7 identicon

Heill og sæll Axel Jóhann - sem og, aðrir gestir, þínir !

Axel Jóhann !

Ágæt lýsing þín; á Guðna Ágústssyni, frá Brúnastöðum, svo sem.

Rétt; að minna þig á, sem aðra lesendur og skrifara þína, að Guðni; ásamt Þorsteini Pálssyni og Margréti Frímannsdóttur, aðhöfðust EKKERT, þegar fornvinur minn og félagi, Eggert Haukdal á Bergþórshvoli austur, barðist EINN þingmanna Suðurlands, fyrir tilvist Hraðsfrystihúss Stokkseyrar h/f; árin 1987 - 1992.

Hins vegar; varðar mig lítið um, einhverjar viðsjár, millum þeirra Norður- Ameríkana, sem Íslendingar eru nefndir, og þykjast sækja fast, að komast undir feldi Evrópskra nylenduvelda ribbalda, suður á Brussel völlum, Skagstrendingur vísi.

Sem; er jú fásinna ein, út af fyrir sig - sem mont og merkilegheit.

Alveg; una Grænlendingar og Færeyingar við sitt, og miklast ekki af, enda ekki nema um eða yfir 50 Þúsundir manna, sem byggja þau lönd.

Mikið; gætu sjálfbirgingslegir Íslendingar lært, að þessum nágranna- og vinaþjóðum, í vestri og austri, fornvinur góður.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi, sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.9.2011 kl. 14:37

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jú, jú, Hilmar Guðni er góður grínari, svo góður að menn hættu að gera greinarmun á honum og Jóhannesi Kristjánssyni eftirhermu. Menn héldu jafnvel, þegar þeir hittu Guðna, að þeir væru að tala við Jóhannes í gervi Guðna. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2011 kl. 16:10

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er gaman að því Óskar,  að þeir sem harðast berjast gegn ESB eru sömu mennirnir og sömu flokkarnir börðust hvað ákafast fyrir því að Kaninn sáði sér sem mest og víðast um landið með sitt hermang. 

En það verður að viðurkennast að kúkurinn úr þeim þarna vestra er til muna betri til neyslu en taðið úr þeim eystra.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2011 kl. 16:26

10 identicon

Komið þið sæl; að nýju !

Axel Jóhann !

Þakka þér fyrir; andsvör skýr og skorinyrt, sem vænta mátti, Skagstrendingur góður.

Með; ekki lakari kveðjum - en þeim fyrri /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.9.2011 kl. 19:46

11 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Það er ekki frá því, að mér finnist eftirlíkingin skemmtilegri en orginallinn

Kristbjörn Árnason, 10.9.2011 kl. 20:14

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Eftirlíkingin hefur fleiri karektera á takteinunum, það er ljóst og fjölhæfari að því leytinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2011 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.