Kaþólska kirkjan spyrnir við fótum - ekki seinna vænna

nun2Þar kom að því að hans heilagleika páfanum í Róm er nóg boðið. Kaþólska kirkjan ætlar að láta sverfa til stáls og stöðva þá lausung og samfélagslegu sundrungu sem kynfrelsis- og jafnréttis hjal kvenna hefur leitt yfir kristið samfélag.

Þessi aðför kvenna að samfélagslegri stöðu karlmanna sem drottnara heimsins,  kvenna og annarra dýra merkurinnar er gersamlega ósamrýmanleg kristinni trú og kristnum gildum  og gróf aðför að mannlegri reisn.

Kirkjan stefnir að því koma konunni aftur fyrir á bak við eldavélina, þar sem skaparinn fann henni stað á sínum tíma eftir að hafa tálgað hana úr rifi Adams og gefið honum hana, til heimabrúks - að eilífu.   

Amen.


mbl.is Vatíkanið ávítir róttækar nunnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ekki seinna vænna að kenna þessum konum að þær eiga bara að vera undirlægjur og þrælar mannsins, eins og auðvitað hlýtur að vera boðað í katólskunni

Umburðarlyndi er sennilega eitthvað ofan á brauð.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2012 kl. 12:40

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Umburðarlyndismarmelaði?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.4.2012 kl. 12:46

3 identicon

Hmmm, attu ekki vid "fyrir framan" frekar en "bak vid" ?

Thad er litid heagt ad athafna sig, thegar buid er ad klessa mann upp vid vegg (nema ad sjalfsogdu ad thad se akkurat adal markmidid(en tha er sa er klessir buinn ad missa starfskraft)).

Oh, well...

Jonsi (IP-tala skráð) 19.4.2012 kl. 14:05

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jónsi hér er Axel að vitna í fræg ummæli Guðna Ágústssonar að staða konunnar væri á bak við eldavélina. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2012 kl. 14:12

5 identicon

Sæll.

Það er gaman að sjá hvað sumir bloggarar eru vel að sér um andleg málefni og hika ekki við að ausa af viskubrunni sínum.

Helgi (IP-tala skráð) 19.4.2012 kl. 14:52

6 Smámynd: Magnús Ágústsson

well ég bý hérna á philippine og er giftur dásamlegri konu sem á 4 ára son

þegar ég fer að vaska upp þá vill konan endilega taka yfir en ég gef mig ekki og klára verkið en henni finnst ég vera að gera lítíð úr henni en ég er alltaf að útskýra fyrir henni að heimilisverkin eru fyrir alla fjölkylduna

annað ég hef verið að reyna að láta strákinn læra að taka til efir sig OMG grátur og gnístur tanna 

well hann fær enn stuðning konunnar um að Drengir eigi ekki að taka til það eru bara konur 

well ég er að reyna að breyta þessum hugunarhætti hægt og hljótt vonandi tekst mér það 

Magnús Ágústsson, 19.4.2012 kl. 15:04

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Magnús, enhverjum hefði þótt þetta bara notalegt

Helgi ertu að meina að þessi viðspyrna Katólskukirkunnar beri vott um umburðarlyndi?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2012 kl. 15:09

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jonsi, ég sé að Ásthildur hefur útskýrt þetta fyrir þér, við þökkum henni fyrir það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.4.2012 kl. 17:05

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Velkominn í hópinn Helgi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.4.2012 kl. 17:08

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Gott hjá þér Magnús, en það gæti tekið mannsaldur að breyta hugsunarhætti heillar þjóðar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.4.2012 kl. 17:13

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já sennilega hefðu margir fílað þetta í botn Ásthildur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.4.2012 kl. 17:15

12 identicon

@ 7:

Þetta mál kemur umburðarlyndi ekkert við.

Fólk sem gerist prestar eða nunnur veit upp á hár hvað það er að undirgangast. Ef fólk skiptir um skoðun er það auðvitað í lagi en þá verður að predika þann boðskap undir öðrum merkjum.

Hvernig ætli fólki í Sf liði nú ef ég hefði gengið í Sf, verið harður ESB sinni og færi síðan allt í einu að segja fólki hve slæmt það væri fyrir Ísland að ganga í ESB og vildi einnig einkavæða sem flest, snarlækka skatta og nánast leggja af núverandi "velferðarkerfi". Væri Sf umburðarlyndur flokkur ef hann leyfði mér að vera áfram? Kannski en ég ætti auðvitað enga samleið með þeim flokki og væri í reynd genginn úr honum. Svipað má segja um þessar nunnur. Búið er að tala við þær og er veru þeirra sem nunnum innan Kaþólsku kirkjunnar ekki sjálfhætt með svona kúvendingu?

Það er svo merkilegt í dag á Vesturlöndum að allt í lagi er að hreyta óhugsuðum ónotum í kirkjuna og kristni en svo andar sama fólk ekki á Íslam. Er það ekki hræsni?

Helgi (IP-tala skráð) 19.4.2012 kl. 17:47

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nú ertu að bera saman epli og appelsínur Helgi.  Skortur á umburðarlyndi er í yfirstjórn Katólsku kirkjunnar.  Ég er viss um að þessar nunnur eru að gera sitt besta í kristilegum anda að leiðbeina fólki á sinn hátt.  En það má ekkert út af bera hjá páfa og kó.  Allt sem heitir hliðarspor er eitur í þeirra beinum.  Þeir verða að hafa völdin og yfirráðin yfir hugsunum manna.  Þetta kallast umburðarleysi.

Þessi stofnun er steinrunninn með steingerfinga í forystu sem stjórna með ótta og hótunum.  Þannig er víst um fleiri trúfélög.  Rétt eins og í norður Kóreu, Kína og áður í USSR hræðsla við að missa völd.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2012 kl. 18:42

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Svo þú hefur ákveðið að ausa líka af þínum viskubrunni Helgi.

 

Ég er á því að starfsemi páfagarðs eigi frekar að flokka sem pólitík en andlegs og trúarlegs eðlis.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.4.2012 kl. 18:55

15 identicon

Konur eru búpeningur.. eign karla, samkvæmt biblíu

DoctorE (IP-tala skráð) 19.4.2012 kl. 19:18

16 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Íslenska kýrin, er stólagripur.

Eins og Guðni segir.

Muuu.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 19.4.2012 kl. 20:29

17 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Stólpagripur, afsakið. :)

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 19.4.2012 kl. 20:29

18 Smámynd: Magnús Ágústsson

no 10

já Axel það tekur margar kynslóðir til að breyta hugsunarhætti þjóðar en ég legg mitt af mörkum 

Magnús Ágústsson, 20.4.2012 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.