Hentifánafélagið Eimskipafélag "Íslands"

Stjórn Eimskipafélags "Íslands" hefði átt samhliða þessari skráningu að sjá sóma sinn í því að skrá skip félagsins á Íslandi, enda hæfir vart annað skipafélagi sem kennir sig við Ísland og vill standa undir nafni sem slíkt.

Þannig að framvegis myndu skip "óskabarns þjóðarinnar" sigla undir Íslenskum fána, en ekki erlendum.

selfoss st.johns

  
mbl.is Eimskip undirbýr skráningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já ég vonaði þegar ég sá fyrirsögnina að þetta væri skráning skipanna á alþjóðlegu íslensku skipaskrána sem sett var á með lögum fyrir nokkrum árum. En það gat varla verið svo gott, enda eru eigendur ekki að hugsa um hvort samfélagið hagnist eitthvað á skiparekstrinum, heldur fyrst og síðast þeir sjálfir. Þetta er samfélagslega ábyrgðin sem allir töluðu um eftir hrunið.

Guðmundur (IP-tala skráð) 12.5.2012 kl. 01:21

2 Smámynd: Marinó Óskar Gíslason

Það verður einnig að hafa í huga að Eimskip í dag er EKKI gamal Eimskipafélag Íslands. Þetta félag sem nú er rekið er með allt aðra kennitölu. Það voru stofnendur Burðaráss sem STÁLU gamla félaginu og skiptu svo um ekennitölu þegar það var komið í þrot. Hafi þeir ævarandi skömm fyrir.

Burðarás var sannkallað skúffufyrirtæki í upphafi. Það voru 3 ávísanahefti í skúffum hjá toppunum hjá félaginu. Og úr þeim skrifuðu þeir upphæðir fyrir hlutabréfum sem gamalt fólk átti. Og það voru upphæðir sem voru miklu lægri en raunverð bréfanna var.

Marinó Óskar Gíslason, 12.5.2012 kl. 02:42

3 identicon

Á tímabili fyrir ekki svo ýkja löngu síðan var verið að auglýsa félagið mikið og þá var m.e.a.s sýndur skutur m.s Dettifoss. Heldur snautleg mynd sem hafði verið "photoshoppuð" þar sem enginn var þjóðfáninn, eða heimahöfn skipsins sýnilegt á myndinni. Allt afmáð!! Einungis nafnið Dettifoss. Skondið.

Hafliði Óskarsson (IP-tala skráð) 12.5.2012 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband