Við unnum...

...ekki!    Hvað gerðist, sigur Íslands var öruggur, alveg fram að stiga- gjöfinni?

Þetta er örugglega enn eitt ESB samsærið gegn okkur!  Getur ástæðan verið einhver önnur?


mbl.is Svíar unnu Evróvisjón 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var EKKI ESB samsæri. Við sendum bara allt of þunglyndislegt lag í keppnina. Það lá við að maður dytti niður í depurð við að hlusta á íslenska lagið sem ég heyrði í fyrsta skipti í kvöld.

óli (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 22:37

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

ESB hefur þá valið lagið, þetta hlýtur að vera ESB að kenna á einn eða annan hátt!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 22:40

3 identicon

Og það sænska er ömurlegt gól og lagleysa sem er gott vitni um smekkleysi fólks. Lagið frá Serbíu var best.

Og síðan getur þetta ekki heitið Evróvísjón lengur.

Azerbaijan er í suð-vestur Asíu og hefur landamæri að Íran.

Hvenær fær Íran að vera með?

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 22:45

4 Smámynd: Anepo

Ein ástæðan er t.d. Jónsi er ALLTOF sjálfumglaður "hér er ég, um mig, frá mér til mín" að klæmast við myndavélina oftar en einu sinni eins og ASNI.

Fólk vill EKKI kjósa fólk sem er að reyna að selja sig og klæmast við myndavélar!
Það kýs vanalega Hógvært fólk sem er ekki að reyna eitthvað fyrir framan vélina eins og asni.

Anepo, 26.5.2012 kl. 22:45

5 identicon

Anepo, líklega ólíklegasta ástæða þess að við lentum í 19 sæti, að Jónsi sé sjálfumglaður, lagið var bara ekki nægilega gott.

V.Jóhannsson, sænska lagið gól?, þú ert líklega of gamall svona tónlist. Iran mun ekki verða með. Þetta er eins og t.d. hjá Evrópska knattspyrnusambandinu þar sem Azerar, Armenar og Ísraelar eru taldir í evrópska knattspyrnusambandið, en ekki Íranir, engin hætta á þeim í keppnina.

Gunnar (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 22:58

6 identicon

Ég er sammála ykkur um Jónsa, alltof montin típa og leiðinlegur, Líklega rétt að ESB hafi verið með sína menn alla á fullu í símanum þegar það var kosið :) en það þarf ekkert að fara í fílu þó að Svíar hafi unnið, það var virkilega gott lag, Rúsar voru líka með gott lag, Írland og Noregur líka, mér fanst Serbneska lagið ekki skemtilegt svo svona er smekkurinn ekki altaf eins og óðarfi að tala um ömurlegt gól og lagleysu og vera í fílu :(

Siggi nokkur (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 23:14

7 identicon

Gunnar, þetta er rétt hjá þér - maður þroskast með aldrinum.

Sænska lagið verður á öldum ljósvakans í eina viku og heyrist síðan ekki meir, nema að sjálfsögðu fyrir næstu kepni í Stockholmi, daginn þann.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 23:18

8 identicon

Eitthvað hefur samt moggin verið utan við sig með annað sætið, en Rúsar voru í öðru sæti með 259 stig en Serbia æi því þriðja með 214 stig, Serbia var fyrir ofan Rúsa í smá tíma í miðri keppni. Leiðinlegt að MBL geti ekki haft þetta rétt

Siggi nokkur (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 23:28

9 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Sá sem kom því til leiðar að Ísland náði 19 sæti var Jónsi með leiðindar glottið hvar sem hann kemur.það er um að gera að senda hann oftar í svona kepni,og verða okkur til skammar....

Vilhjálmur Stefánsson, 26.5.2012 kl. 23:32

10 Smámynd: hilmar  jónsson

Hva, voða eru menn vonsviknir. Við unnum. (Miðað við höfðatölu)

Sendum þennan næst og klárum dæmið:

http://www.youtube.com/watch?v=Weu-qpI6G3A

hilmar jónsson, 26.5.2012 kl. 23:32

11 identicon

Skrítið...

Allt þetta fólk sem spáði okkur 3-7 sæti...lol

Palli, Hera og allir Eurovision gúruar.

Kannski tími til að skipta um fólk ?

Þau allavega hafa ekki vit á þessu !

Birgir (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 23:34

12 identicon

Rosalega ertu í fúlu skapi V.Jóhannsson, Sænska lagið er gott þó þú hafir ekki fílað það, Svíar fengu stig frá öllum þjóðum nema einni og 12 stig frá 18 þjóðum og þó maður hafi ekki verið samála úrslitum alltaf þá geta ekki allar þessar þjóðir verið heimskar en þú ekki. Legðu þig aðeins og jafnaðu þig, fáðu þér svo gott kaffi í fyrrmálið og atthugaðu hvort að skapið lagist ekki aðeins við það :) 

Siggi nokkur enn og aftur (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 23:36

13 identicon

Moggin búinn að laga þetta með annað sætið :), gott að þeir áttuðu sig á því, vont að bulla bara

Siggi nokrum sinum en (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 23:41

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Að vera ákveðinn og hafa trú á sjálfum sér er oft flokkað sem mont og stærilæti. Er ekki Jónsi ágætis söngvari? Er það ekki aðal málið?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 23:42

15 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hilmar mér líst ágætlega á Megas, hann myndi allavega syngja á íslensku!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 23:45

16 Smámynd: hilmar  jónsson

Sem við og eigum að gera, þ.e. að syngja á Íslensku.

Keppnin er markvist að renna saman í tilbreytingarlaust sætsúpu sull þar sem MTV trendið yfirskyggir öll þjóðareinkennin.

Þetta var mun skemmtilegra hér áður fyrr þegar maður gat hlegið að Finnum og Hollendingum.

hilmar jónsson, 26.5.2012 kl. 23:52

17 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Og þeir að okkur!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2012 kl. 23:56

18 Smámynd: hilmar  jónsson

Nei, nú gengurðu of langt....

hilmar jónsson, 26.5.2012 kl. 23:58

19 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já það er satt,  auðvitað hlær engin að okkur, við sem gerum allt mest og best.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.5.2012 kl. 00:02

20 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Fyrir þá sem vilja tengja þetta við Jónsa þá lenti hann líka í 19. sæti árið 2004.

Loreen hin sænska er hinsvegar mikill aðdáandi Bjarkar og tekur hana til fyrimyndar þannig að í raun vann Ísland eftir allt.

Emil Hannes Valgeirsson, 27.5.2012 kl. 00:06

21 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ekki heyrði ég Emil, neina Bjarkar skræki í söng þeirrar sænsku.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.5.2012 kl. 00:15

22 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

En tilgáta þín er góð fyrir þjóðernisrembinginn!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.5.2012 kl. 00:16

23 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það má alltaf týna eitthvað til, til að fóðra þjóðrembuna. Blikka

Hér tekur Loreen t.d. eitt Bjarkarlag:

http://www.youtube.com/watch?v=OLuToPie3gM

Emil Hannes Valgeirsson, 27.5.2012 kl. 01:21

24 identicon

Gréta var þæg og góð, sæt og stillt, hélt kjafti, var siðprúð og diplómatísk yfir því að ótal manns hefðu þurft að yfirgefa heimili sín til að þarna væri byggð tónleikahöll, og þó að þetta sé fátækt og allslaust fólk núna. Ég sting því upp á að Gréta bjóði sig fram sem forseti Íslands. Svo er hún ljóshærð og allt. Fullkominn kandídat! Margir gamlir þjóðverjar munu fá tárin í augun af væmni yfir henni og hún mun slá í gegn hjá ESB!

Einar (IP-tala skráð) 27.5.2012 kl. 05:13

25 Smámynd: Þorsteinn J Þorsteinsson

komdu sæl Axel Johann,eg held ad tessar tjodir(41) tarna uti i Evropu hafi bar ekki hundsvit a tonlist vid høfum ALTAF haft besta lagid en aldrei unnid,ja eda kanski er tad ESB,sem er ad stjorna tessu

Einar nu var tad bara ekki svoleidis ad tetta væri FATÆKA FOLKID SEM VAR FLUTT;tetta var folk sem bjo i einu rikastaa hverfi borgarainnar,og fekk bætur,enda dro BBC frettina til baka og badst afsøkunar a synum tima.Tad gleimdist bara ad seigja fra tvi a Islandi

Þorsteinn J Þorsteinsson, 27.5.2012 kl. 10:19

26 identicon

Það er sigur að þau unnu ekki, því ella þyrftum við að heyra lagið út í það óendanlega

DoctorE (IP-tala skráð) 27.5.2012 kl. 10:45

27 Smámynd: Jens Guð

  Ég fylgdist ekkert með þessari keppni.  Hins vegar komst ég ekki hjá því að heyra dögum saman vitnað í nafngreindan íslenskan aðdáanda keppninnar þar sem hann fullyrti að íslenska lagið myndi vinna í ár.  Í hverjum fréttatíma RÚV á fætur öðrum var fréttin endurtekin.  Ég átta mig ekki á þessu fréttamati. 

  En það er með þetta eins og annað er snýr að keppninni:  Það er gert alltof alltof mikið úr þessu ómerkilega dæmi.  Það væri yfirdrifið nóg að sýna frá keppninni á netinu og hlífa fréttatímum við öllu hjali um hana.  

Jens Guð, 27.5.2012 kl. 14:29

28 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Einar, eins og Þorsteinn bendir á var þessi frétt ekki á rökum reist. Páll Óskar hefur verið manna iðnastur að halda þessu á lofti og krefjast þess að íslensku þátttakendurnir tækju þátt í pólitík og hefðu afskipti af innanríkismálum Aserbaídsjan.

En af hverju færði Páll Óskar ekki fórnir sjálfur og aflýsti Erovision samkomu sinni á Nasa, úr því þetta er honum svona mikið hjartans mál?  Nei það gerði Páll Óskar ekki, hann ætlaði öðrum að mótmæla og bera af því hitann og þungann. Sjálfur baðaði hann sig í sviðsljósi meintra mannréttindabrota eins og honum væri borgað fyrir það.  

Auðvitað hefðu stjórnvöld í Bakú lítið af því vitað hvort væri opið eða lokað á Nasa. En Páll Óskar hefði með því getað sýnt og sannað þjóðinni að hann væri heill og sannur í þessu máli. Hann féll á því prófi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.5.2012 kl. 14:46

29 identicon

Gleyma menn því að lagið sem vann hér heima, þ.e.a.s. fékk mun fleiri stig og

þjóðinni þótti betra, var skotið út af einhverri dómnefnd sem hafði meira vægi

en þjóðin. Sýndi sig bara hverslags bull þessi símkosning var.

Það lag hefði farið lengra.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 27.5.2012 kl. 17:49

30 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Var það ekki í samræmi við fyrirfram ákveðnar reglur um vægi milli dómnefndar og símakosningarinnar, Sigurður? Það er þannig fyrirkomulag í aðalkeppninni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.5.2012 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.