Risvandamál

Þeirri gleði verður vart með orðum lýst að Kim Kardashian skuli loks hafa hlotið náð fyrir augum Beyoncé og sú síðarnefnda tekið þá fyrri í sátt og sinn umgangshóp. Þröngsýni og kali B í garð K hefur valdið verulegum óróleika á stjörnustórmarkaðinum.

Allt frá því einhver reið einhverju sem hann eða hún átti ekki að serða, hefur þetta mál valdið verulegu  falli á stjörnugengisvísitölunni, sem aftur hefur valdið keðjuverkandi falli risvísitölunnar í Hollywood.

En núna þegar Beyoncé brosir opinberlega til Kim með langrifunni er von til að meiri reisn færist aftur yfir Hollýhæðir og muni breiðast út sem eldur í sinu.

Það er von manna á framhjáhaldsmarkaðnum í Hollý að ástandið lagist sem fyrst, í það minnsta þannig að þeir sem ekki ná að eðla sig með næsta manni eða konu fyrir hádegi geti í það minnsta náð að ljúka því fyrir seinna kaffi.

 


mbl.is Loksins tekin í sátt af Beyoncé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það besta við þetta, er að nú þarf eki lengur að minnast á þetta bull á mbl.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 25.6.2012 kl. 23:34

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það verður aldrei of mikið af svona bjartsýnismömmum eins og þér Birgir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.6.2012 kl. 23:48

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

B og K virðast vera mikið lesnar á mbl.is

Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.6.2012 kl. 08:30

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Við erum þjóða færastir að greina hismið frá kjarnanum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.6.2012 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.