Hvernig er það, ætlar enginn að krefjast þess að skítseyðinu verði bjargað heim?

Þess verður örugglega ekki langt að bíða að einhver ríði á vaðið og síðan verða allar vælur ræstar og þess krafist að þessum „landsins sóma“ verði bjargað heim og honum forðað frá illum aðbúnaði í Brasilískum fangelsum, sem eru auðvitað ekki mikilsmetandi glæpamönnum Íslenskum bjóðandi.

 

Svona kappa hæfir auðvitað ekkert minna en lúxusdvöl á fimmstjörnu ríkishótelinu á Eyrarbakka, svo honum megi líða sem best á meðan hann upphugsar nýjar leiðir til að flytja inn eitur í æðar íslenskra ungmenna.

 
mbl.is Langur brotaferill Sverris Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að sjálfsögðu þurfum við að fá hann heim, okkur vantar vaktmann út í Kolbeinsey.

Björn (IP-tala skráð) 6.7.2012 kl. 00:39

2 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Leyfum honum að dúsa þarna úti. Hann hefur með fullri vitund unnið sér það inn. Sama er mér.

Bergljót Gunnarsdóttir, 6.7.2012 kl. 02:03

3 identicon

Jú jú það kemur vælusaga í DV þar sem hann sér eftir öllu og ætli að feta beinu brautina héðan í frá.

HAG (IP-tala skráð) 6.7.2012 kl. 04:22

4 identicon

Er ekki best að leyfa Brösunum að meðhöndla þennan gaur, hann valdi sér vetvang þarna suður frá til sinnar glæstarfsemi, er þá ekki best að hann súpi seyðið af því þar?.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 6.7.2012 kl. 08:51

5 identicon

leiðrétting: glæpastarfsemi á þetta að vera.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 6.7.2012 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband